Zolo & co lítið og fallegt fjölskyldufyrirtæki í Keflavík Zolo & Co 22. desember 2020 09:02 Fallegir ilmolíulampar frá Zolo & co í Keflavík Öðruvísi gjafavörur og ilmur fyrir heimilið er meðal þess sem fæst í versluninni Zolo & co í Keflavík, lítið fjölskyldufyrirtæki sem byrjaði í stofunni heima. „Við erum með landsins mesta úrval af ilmolíulömpum og olíum. Auk þess erum við með einstaka og öðruvísi gjafavöru. Við leggjum áherslu á að vera með vörur sem fást ekki hvar sem er, enda fáum við rosa mikið af fólki allsstaðar að af landinu til okkar," segir Sunna Dís, verslunarstjóri Zolo & co Hafnargötu 23 í Keflavík. „Þetta var nú bara þannig að mamma mín byrjaði með ilmolíulampana heima hjá sér í stofunni fyrir þó nokkrum árum síðan en þá komu viðskiptavinirnir bara heim í kósýheit til hennar að velja sér lampa og ilmi, fólki fannst það bara voða „næs“. Einnig vorum við í nokkur ár með alla lampana til sýnis og í sölu á Flughótelinu í Keflavík á Ljósanótt. Það vakti mikla lukku meðal fólks og út frá því kom hugmyndin um að opna okkar eigin verslun í fallega bænum okkar og hér höfum við verið síðan í mars 2017," segir Sunna Dís. „Við ætluðum að einblína mest á ilmolíulampana en í dag er Zolo bara svo miklu meira en ilmolíulampar. Við elskum öðruvísi hluti og erum með bæði smáa og alveg upp í risa stóra, sem þú sérð ekki á hverju heimili! Við erum eiginlega orðin svolítið þekkt fyrir það, sem dæmi má nefna ugluborð, strútsljós, stærðarinnar gírfaffalampa, bleika brosandi flóðhesta, apa í geimfarabúningum, stór glitrandi andlit á vegg, skemmtilega andlitsblómapotta, fyndna aplampa og allskonar skemmtilegt sem lífgar svo sannarlega upp á heimilið. Og það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að við pöntum oftast mjög fáa svona sérstaka hluti, svo þeir sem kaupa sér þá eru ekki að fara sjá þá á mikið fleiri stöðum en heima hjá sér." „Við erum líka með æðislegar organic húð-og brúnkulínur, tannhvíttunarvörur og maska, það er nefnilega þannig að allt sem við erum með í versluninni okkar er eitthvað sem við viljum sjálf eiga eða notum. Svo er bara svo gaman að vera vinna í svona fallegu og ilmandi umhverfi alla daga," segir Sunna Dís. „Svo má ekki gleyma frönsku ljósunum okkar sem hafa svo sannarlega slegið í gegn! Þau eru einstaklega falleg, lýsingin frá þeim minnir svolítið á sólina, hreint út sagt bara eins og listaverk að horfa á þau! Við fjölskyldan munum standa vaktina í búðinni 22. desember frá klukkan 11 til 22, á Þorkláksmessu frá klukkan 11 til 23 og á aðfangadag frá 10 til 12." Hægt er að finna okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Ilmolíulampar og kíkja í vefverslunina okkar hér. Hús og heimili Jól Mest lesið Hætti að drekka og flutti til Balí Lífið „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Menning Albert gaf Villa málverk af mótorhjólaferðinni Lífið Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Tíska og hönnun Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Lífið Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Lífið Maguire hlóð rafhlöðurnar á Fróni Lífið „Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ“ Lífið Birgir Hákon orðinn pabbi Lífið Óperan lifir á íslensku Gagnrýni Fleiri fréttir Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira
„
Hægt er að finna okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Ilmolíulampar og kíkja í vefverslunina okkar hér.
Hús og heimili Jól Mest lesið Hætti að drekka og flutti til Balí Lífið „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Menning Albert gaf Villa málverk af mótorhjólaferðinni Lífið Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Tíska og hönnun Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Lífið Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Lífið Maguire hlóð rafhlöðurnar á Fróni Lífið „Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ“ Lífið Birgir Hákon orðinn pabbi Lífið Óperan lifir á íslensku Gagnrýni Fleiri fréttir Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira
Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Tíska og hönnun
Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Tíska og hönnun