Einkenni og afleiðingar fitufordóma á vinnustöðum Rakel Sveinsdóttir skrifar 16. desember 2020 07:01 Fitufordómar á vinnustöðum eru staðreynd og þá þarf að uppræta eins og aðra fordóma. Vísir/Getty Getur verið að þú haldir um margt fólk í ofþyngd að það séu hálfgerðir letingjar? Eða að viðkomandi sé ekkert rosalega klár? Ertu með yfirlýsingar um að fólk í ofþyngd sé með litla sjálfstjórn og almennt ekki hraust? Finnst þér fólk í ofþyngd minna spennandi í ásýnd og útliti?
Að svara einhverjum af þessum spurningum játandi eru lýsandi einkenni fitufordóma. Fitufordómar geta jafnframt falið í sér viðhorf eins og að fólk í ofþyngd sé ekki nógu samviskusamt til vinnu. Að það sé yfir höfuð ekki eins viðkunnanlegt og annað fólk eða í jafn góðu jafnvægi tilfinningalega og annað fólk. Engar fullyrðingar í þessa veru er þó hægt að rökstyðja með rannsóknum. Það sem rannsóknir hafa hins vegar sýnt marg oft er að fitufordómar á vinnustöðum eru staðreynd. Þessir fitufordómar beinast að samstarfsfólki, stjórnendum, stjórnarmönnum og viðskiptavinum. Sem dæmi má nefna hafa rannsóknir sýnt að fólk í ofþyngd er oft ólíklegra til að vera ráðið í starf en fólk í meðalþyngd. Þannig geta fitufordómar komið fram strax í ráðningaferlinu. Þá hafa rannsóknir sýnt að viðhorf starfsfólks til stjórnenda í ofþyngd, þar með talið stjórnarmeðlimi, er neikvæðara í samanburði við viðhorf starfsfólks til stjórnenda í meðalþyngd. Viðskiptavinir geta orðið fyrir barðinu á fitufordómum á vinnustöðum. Afleiðingar fitufordóma Afleiðingar fitufordóma á vinnustöðum eru almennt þær sömu og sýna sig með fordóma og mismunun af öðru tagi. Áhrifin eru neikvæð á líkamlega og andlega heilsu og líðan starfsfólks. Viðhorf starfsfólks mælist neikvæðara gagnvart vinnustaðnum og árangurs í starfi. Þá geta fitufordómar á vinnustöðum haft áhrif á veltu og viðskipti. Rannsóknir hafa t.d. sýnt að fólk í ofþyngd verslar minna hjá fyrirtækjum þar sem það upplifir fordóma í sinn garð af hálfu starfsfólks. Rannsóknir hafa sýnt að fitufordómar á vinnustöðum hafa neikvæð áhrif en þessir fordómar ná til bæði starfsfólks og stjórnenda.Vísir/Getty Hvað er til ráða? Stjórnendur þurfa að grípa til aðgerða gagnvart fitufordómum á sama hátt rétt eins og á við um aðra fordóma eða mismunun. Huga þarf að aðgerðum og forvörnum. Þau þrjú atriði sem stjórnendum er bent á eru: 1. Sjálfskoðun: Hvernig er viðhorfið þitt? Það fyrsta sem stjórnendur þurfa að gera er að líta í eiginn barm og velta því fyrir sér hvort þeir séu sjálfir með fitufordóma. Oft eru fitufordómar ómeðvitaðir þannig að hér þurfa stjórnendur að gaumgæfa það vel, hvort fitufordómar séu til staðar hjá þeim sjálfum. 2. Eru mælikvarðar án fordóma? Þá þurfa stjórnendur að fara vel í gegnum alla ferla þar sem árangur starfsfólks er metinn eða ákvarðanir teknar, t.d. varðandi verkefnaúthlutun. Mælikvarðar þurfa alltaf að vera fordómalausir gagnvart útliti fólks, kyni, kynhneigð o.fl. þar sem hætta er á mismunun. 3. Eru fitufordómar meðtaldir öðru í forvörnum? Þá þurfa stjórnendur að gæta þess í forvarnarstarfi að fitufordómar séu ræddir og þeir nefndir. Í þessu samhengi þurfa skilaboðin að vera skýr þannig að vel komi fram að fitufordómar séu hvorki liðnir innan hópa samstarfsfólks né í garð viðskiptavina.
Stjórnun Góðu ráðin Tengdar fréttir Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 8. desember 2020 07:00 Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum. 4. nóvember 2020 07:00 Yfirmenn oftast gerendur í eineltismálum á vinnustað Erfið starfsmannamál: Einelti á vinnustöðum jókst í kjölfar bankahruns en minnkaði aftur þegar atvinnuástand batnaði. Stjórnendur eru oftast gerendur. 22. janúar 2020 12:00 Samstarfsfólk sem hefur neikvæð áhrif á vinnustaðinn Það getur verið dýrkeypt fyrir vinnustaði að taka ekki á því ef starfsfólk hefur neikvæð áhrif á andrúmsloftið eða samstarfsfélaga. Oft þarf ekki nema einn einstakling á vinnustað til að eitra út frá sér. 19. ágúst 2020 11:00 Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 8. desember 2020 07:00
Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum. 4. nóvember 2020 07:00
Yfirmenn oftast gerendur í eineltismálum á vinnustað Erfið starfsmannamál: Einelti á vinnustöðum jókst í kjölfar bankahruns en minnkaði aftur þegar atvinnuástand batnaði. Stjórnendur eru oftast gerendur. 22. janúar 2020 12:00
Samstarfsfólk sem hefur neikvæð áhrif á vinnustaðinn Það getur verið dýrkeypt fyrir vinnustaði að taka ekki á því ef starfsfólk hefur neikvæð áhrif á andrúmsloftið eða samstarfsfélaga. Oft þarf ekki nema einn einstakling á vinnustað til að eitra út frá sér. 19. ágúst 2020 11:00
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent