Þetta hefur AFP fréttaveitan eftir heimildarmönnum sínum í Líbanon.
Hundruð dóu og þúsundir slösuðust þegar 2.750 tonn af ammóníum nítrati, sem notað er í áburð og sprengiefni, sprungu í vöruskemmu á hafnarsvæði Beirút þann 4. ágúst.
Embættismenn höfðu ítrekað verið varaðir við hættunni. Diab og Michel Aoun, forseti, höfðu fengið bréf um málið rúmum tveimur vikum fyrir sprenginguna.
Efnin höfðu þá verið í vöruskemmunni um árabil. Þeim var komið fyrir í vöruskemmunni árið 2014 þegar það var tekið úr skipi sem að endingu var gert upptækt. Þar voru einnig geymdir flugeldar.
Opinber gögn hafa sýnt að hafnarstarfsmenn og aðrir reyndu ítrekað að losna við efnin í gegnum árin.
Sjá einnig: Varaðir við hættunni í síðasta mánuði
Diab sagði af sér í sumar en hefur ekki enn látið af embætti. Þegar hann sagði af sér sagðist hann hafa komist að þeirri niðurstöðu að spillingin í Líbanon væri „stærri en ríkið“.
Saad Hariri var skipaður í embætti forsætisráðherra í þriðja sinn.
Líbanon gengur nú í gegnum margskonar krísur og vandræði sem má að miklu leyti rekja til spillingar og vanstjórnar. Efnahagur landsins stendur verulega höllum fæti og það sama má segja um stjórnkerfi landsins. Við það bætist svo veruleg andstaða íbúa Líbanon við ráðandi fylkingar þar í landi, sem hafa stjórnað um áraskeið.