Valinn vísindamaður ársins hjá Dönsku sykursýkisakademíunni fyrir byltingarkennda aðferð Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. desember 2020 13:19 Uppgötvanir Páls með nýstárlegri tækni við húðsýnistöku hafa leitt af sér nýja rannsókn. Nú leitast teymið við að þróa aðferð við að slökkva á sumum af þeim verkjasameindum sem umlykja skyn-og verkjataugar í húðinni hjá sjúklingum sem glíma við langvinna verki. Aðsend Páll Karlsson, aðstoðarprófessor og dósent við Dönsku verkjarannsóknarmiðstöðina við Árósarháskóla, var á dögunum valinn vísindamaður ársins hjá Dönsku sykursýkisakademíunni fyrir byltingarkennda aðferð sem hann þróaði við að taka og greina lítil húðsýni sem notuð eru til að kanna ástand skyn- og verkjatauga í húðinni. Í ljós kom að krónískir verkjasjúklingar voru með verkjasameindir sem umluktu taugarnar. Páll hefur búið í Danmörku frá árinu 2007.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Páll, aðspurður, að þetta væri mikill heiður og að honum hefði brugðið mjög við fréttirnar. „Ég vissi að prófessorarnir á deildinni minni höfðu tilnefnt mig en ég verð að viðurkenna að mig óraði ekki fyrir að ég myndi vinna enda fjölmargt gott vísindafólk þarna.“ Í umsögn Dönsku sykursýkisakademíunnar kemur fram að aðferðir Páls hefðu valdið hugarfarsbreytingu innan vísindasamfélagsins. Aðferðin væri markaði vatnaskil eins og komist var að orði. Í doktorsnámi Páls á árunum 2010-2013 þróaði hann aðferð við að taka og greina lítil húðsýni til að kanna ástand lítilla skyn- og verkjatauga í húðinni hjá sjúklingum sem glíma við langvinna verki. Fjölmargir undirliggjandi sjúkdómar geta valdið verkjunum og meðal annars sykursýki. Þrjátíu prósent sykursjúkra þróa með sér taugabólgur og finna fyrir langvinnum verkjum. Páll að störfum hjá verkjarannsóknarmiðstöðinni við Árósarháskóla. Aðsend Uppgötvaði ákveðna þverstæðu við rannsóknina Við rannsóknarvinnuna komst Páll að ákveðinni þverstæðu. Fyrirfram hefði hann gert ráð fyrir að fleiri skyn- og verkjataugar væru í krónískum verkjasjúklingum en í öðrum en þessar taugar gera okkur kleift að finna fyrir verkjum og snertingu. Annað kom þó á daginn eftir því sem rannsókninni vatt fram. Krónískir verkjasjúklingar reyndust hafa minna af skyn-og verkjataugum en aðrir þrátt fyrir að verkirnir séu daglegt brauð. „Það sem við komumst að var að það eru nokkrar sameindir sem liggja utan um þessar verkjataugar og við teljum að það sé ástæðan fyrir því að sumir þessara sjúklinga fá verki því þrátt fyrir að sjúklingarnir væru með mjög lítið af þessum taugum þá sáum við mjög mikið magn af þessum verkjatengdu sameindum sem voru utan á taugunum,“ sagði Páll. Þessi uppgötvun leiddi af sér annað verkefni sem mun vonandi lina þjáningar sjúklinganna. „Núna erum við í því ferli að hanna nýja meðferðarrannsókn sem hefur þann tilgang að loka á eða slökkva á sumum af þessum verkjasameindum. Við vonumst til þess að það muni hjálpa þessum sjúklingum.“ Valda þessar verkjasameindir sem umlykja taugarnar bólgum hjá sjúklingunum? „Ég hef kallað þennan króníska verkjasjúkdóm taugabólgur. Við sjáum bólgur utan á þessum taugum hjá þeim sjúklingum sem hafa verkina en nýleg rannsókn okkar sýndi að þessar bólgur hafa lítið samhengi við verkina. Við héldum í fyrstu að það væru bólgurnar sem yllu verkjunum en það virðist ekki vera.“ Agnarsmá sýni segja heilmikla sögu Húðsýnið sem tekið er úr krónísku verkjasjúklingunum er tiltölulega smátt, í raun lítil agnarögn, miðað við þá sögu sem sýnið getur sagt rannsakendum. Sýnin eru ekki nema þrír millimetrar að ummáli. „Það sem við síðan gerum við sýnin er að við frystum þau niður, svo skerum við þau í mjög þunnar skífur. Þá er mótefni sett og loks litarefni á frumurnar þannig að við getum séð þessar verkjataugar og numið hvort það séu bólgur í kringum taugarnar og hversu mikið af mismunandi verkjasameindum eru til staðar.“ Páll segir að frásagnir sjúklinganna sjálfra af verkjum hafi verið honum innblástur. „Ég hef mjög gaman af því að vera í mannlegum samskiptum og að geta hitt þessa sjúklinga sem eru með sykursýki og hafa jafnvel verið með verki í fleiri áratugi. Þeir segja mér að þeir hafi kannski lifað við þessa brennandi verki í langan tíma. Þetta eru verkir upp á 8, 9 og jafnvel 10 á þessum 0-10 skala sem við notum til að mæla verki og þá er ekki annað hægt en að fyllast innblæstri og vilja gera sitt allra, allra besta til að komast að því hvers vegna þessir sjúklingar fá verki.“
Vísindi Danmörk Íslendingar erlendis Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sjá meira