Crystal Palace gengur ekki vel að vinna leiki á föstudögum og sú bölvun hélt áfram í kvöld.
Crystal Palace og Newcastle mættust í fyrsta leik helgarinnar í enska boltanum. Leikið var á Selhurst Park í kvöld og bæði mörk Newcastle í 2-0 sigrinum komu á síðustu þremur mínútunum.
Bæði lið fengu hálf færi í fyrri hálfleiknum en ekki voru þó sköpuð mörg opin tækifæri. Markalaust í hálfleik.
Örlítið meira líf færðist í leikinn í síðari hálfleik og Crystal Palace voru ívið líklegri en þeir náðu ekki að skora. Fyrsta mark leiksins kom þó í hinum enda vallarins á 88. mínútu.
Eftir gott spil Callum Wilson og Joelinton þá kom Wilson boltanum í netið og kom Newcastle yfir. Einungis tveimur mínútum síðar skoraði Joelinton sjálfur og tryggði Newcastle 2-0 sigur.
Palace hefur því ekki unnið síðustu þrettán leiki sem liðið hefur spilað á föstudögum; fimm töp og átta jafntefli en liðið er í þrettánda sætinu með þrettán stig.
Newcastle er í tíunda sætinu með fjórtán stig.