Sveinn Aron bætti árangur pabba síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2020 12:31 Sveinn Aron Guðjohnsen og Eiður Smári Guðjohnsen í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Samsett/Vilhelm og Getty Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði í gær sitt sjötta mark fyrir íslenska 21 árs landsliðið og komst þar með upp fyrir Eiðs Smára Guðjohnsen. Sveinn Aron Guðjohnsen hefur heldur betur verið á skotskónum með íslenska 21 árs landsliðinu í þessari undankeppni EM en hann skoraði sitt fimmta mark í undankeppninni í 2-1 sigri á Írum. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fyrra markið og kom Íslandi í 1-0 en Valdimar Þór Ingimundarson skoraði síðan sigurmarkið á síðustu stundu eftir að Írarnir höfðu jafnað metin. Íslensku strákarnir þurftu að vinna leikinn til þess að eiga möguleika á því að komast í lokakeppnina. Frammistaða Sveins Arons hefur vakið athygli A-landsliðsþjálfarans því strákurinn var kallaður inn í íslenska A-landsliðið fyrir leikinn á móti Englandi á Wembley á miðvikudagskvöldið. Sveinn Aron er nú orðinn markahæsti Guðjohnsen með íslenska 21 árs landsliðinu því hann komst upp fyrir pabba sinn í gær. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði á sínum tíma fimm mörk í ellefu leikjum fyrir íslenska 21 árs landsliðið. Sveinn Aron er kominn með sex mörk fyrir U21 en reyndar í fjórum fleiri leikjum. Eiður Smári hefur enn forskotið í markaskori fyrir öll unglingalandslið því hann skoraði á sínum tíma 13 mörk fyrir íslensku yngri landsliðin. Eiður Smári er líka ennþá markahæsti leikmaður A-landsliðsins. Sveinn Aron er kominn með tíu mörk fyrir íslensku yngri landsliðin þar af níu þeirra fyrir 19 ára og 21 árs landsliðið. Mörk fyrir 21 árs landsliðið 6 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen Mörk fyrir öll yngri landsliðið 13 - Eiður Smári Guðjohnsen 10 - Sveinn Aron Guðjohnsen Markahæstir hjá 21 árs landsliðinu í riðlakeppni EM 2021: 5 - Sveinn Aron Guðjohnsen 3 - Willum Þór Willumsson 2 - Ísak Óli Ólafsson 2 - Jón Dagur Þorsteinsson 1 - Ari Leifsson 1 - Brynjólfur Andersen Willumsson 1 - Jónatan Ingi Jónsson 1 - Valdimar Þór Ingimundarson Fótbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Leik lokið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher Formúla 1 Fleiri fréttir Tók Kristal Mána aðeins tvær mínútur að skora Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Tekur hanskana af hillunni og hjálpar Börsungum í neyð Í beinni: KA - HK | Hve kröftug er bikarþynnkan? McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Sjá meira
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði í gær sitt sjötta mark fyrir íslenska 21 árs landsliðið og komst þar með upp fyrir Eiðs Smára Guðjohnsen. Sveinn Aron Guðjohnsen hefur heldur betur verið á skotskónum með íslenska 21 árs landsliðinu í þessari undankeppni EM en hann skoraði sitt fimmta mark í undankeppninni í 2-1 sigri á Írum. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fyrra markið og kom Íslandi í 1-0 en Valdimar Þór Ingimundarson skoraði síðan sigurmarkið á síðustu stundu eftir að Írarnir höfðu jafnað metin. Íslensku strákarnir þurftu að vinna leikinn til þess að eiga möguleika á því að komast í lokakeppnina. Frammistaða Sveins Arons hefur vakið athygli A-landsliðsþjálfarans því strákurinn var kallaður inn í íslenska A-landsliðið fyrir leikinn á móti Englandi á Wembley á miðvikudagskvöldið. Sveinn Aron er nú orðinn markahæsti Guðjohnsen með íslenska 21 árs landsliðinu því hann komst upp fyrir pabba sinn í gær. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði á sínum tíma fimm mörk í ellefu leikjum fyrir íslenska 21 árs landsliðið. Sveinn Aron er kominn með sex mörk fyrir U21 en reyndar í fjórum fleiri leikjum. Eiður Smári hefur enn forskotið í markaskori fyrir öll unglingalandslið því hann skoraði á sínum tíma 13 mörk fyrir íslensku yngri landsliðin. Eiður Smári er líka ennþá markahæsti leikmaður A-landsliðsins. Sveinn Aron er kominn með tíu mörk fyrir íslensku yngri landsliðin þar af níu þeirra fyrir 19 ára og 21 árs landsliðið. Mörk fyrir 21 árs landsliðið 6 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen Mörk fyrir öll yngri landsliðið 13 - Eiður Smári Guðjohnsen 10 - Sveinn Aron Guðjohnsen Markahæstir hjá 21 árs landsliðinu í riðlakeppni EM 2021: 5 - Sveinn Aron Guðjohnsen 3 - Willum Þór Willumsson 2 - Ísak Óli Ólafsson 2 - Jón Dagur Þorsteinsson 1 - Ari Leifsson 1 - Brynjólfur Andersen Willumsson 1 - Jónatan Ingi Jónsson 1 - Valdimar Þór Ingimundarson
Mörk fyrir 21 árs landsliðið 6 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen Mörk fyrir öll yngri landsliðið 13 - Eiður Smári Guðjohnsen 10 - Sveinn Aron Guðjohnsen Markahæstir hjá 21 árs landsliðinu í riðlakeppni EM 2021: 5 - Sveinn Aron Guðjohnsen 3 - Willum Þór Willumsson 2 - Ísak Óli Ólafsson 2 - Jón Dagur Þorsteinsson 1 - Ari Leifsson 1 - Brynjólfur Andersen Willumsson 1 - Jónatan Ingi Jónsson 1 - Valdimar Þór Ingimundarson
Fótbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Leik lokið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher Formúla 1 Fleiri fréttir Tók Kristal Mána aðeins tvær mínútur að skora Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Tekur hanskana af hillunni og hjálpar Börsungum í neyð Í beinni: KA - HK | Hve kröftug er bikarþynnkan? McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Sjá meira