Það er erfitt að tárast ekki líka þegar horft er á verðlaunlaunamyndband Katrínar Tönju Davíðsdóttur á síðum heimsleikanna í CrossFit.
CrossFit samtökin birtu í gær myndband af því þegar íslensku CrossFit konunni Katrínu Tönju Davíðsdóttur voru afhent Spirit of the Games verðlaunin á heimsleikunum á dögunum.
Myndbandið er tilfinningamikið og sýnir vel hvað það skipti Katrínu Tönju miklu máli að fá verðlaun fyrir hluti sem hún sjálf leggur svo mikla áherslu á.
Katrín Tanja Davíðsdóttir stóð sig ekki aðeins frábærlega í stigasöfnun á heimsleikunum í CrossFit um síðustu helgi með því að ná öðru sætinu og silfurverðlaunum.
Hún var til svo mikillar fyrirmyndar hvað varðar frábært keppnisskap, góða framkomu og smitandi jákvæðni í þessari krefjandi keppni að yfirmenn heimsleikanna ákváðu að veita Katrínu Tönju sérstök verðlaun.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið af því þegar Katrín Tanja fékk verðlaunin sín.
„Frá árinu 2007 þá höfum við afhent Spirit of the Games verðlaunin til þeirra sem tilenka sér best gildi CrossFit samtakanna í erfiðustu keppninni okkar. Það eru þau sem sýna þann karakter, þá skuldbindingu og þá íþróttamennsku sem við leitumst eftir á æfingum og í okkar íþrótt,“ sagði Nicole Carroll hjá CrossFit samtökunum sem afhenti verðlaunin.
„Þetta voru mögulega erfiðustu heimsleikarnir til þessa og allir tíu íþróttamennirnir komust í gegnum í þessi líkamlegu og andlegu átök með fyrirmyndarþokka, þrjósku og hugrekki. Það er ómögulegt að horfa á þau og fyllast ekki andblæstri,“ sagði Carroll og hélt áfram.
„Það var jafnómögulegt að taka ekki eftir einum íþróttamanni okkar sem er sérstaklega glaðleg og óttlaus þegar kemur að því að mæta mótlæti. Hún er sérstaklega staðráðin í því að vera besta útgáfan af sjálfri sér og hvetur um leið aðra til að gera sitt besta líka,“ sagði Carroll og kallaði síðan upp nafn Katrínar Tönju Davíðsdóttur.
„Hún fagnar því leiðinlega með einu JÁI og því sem er enn leiðinlega með enn hærra JÁI. Með brosi á vör og veifu þá segir hún: Komið með þetta,“ sagði Carroll.