„Þegar maður fer á fjöll með þeim þá þarf maður eiginlega að klípa sig til að athuga hvort maður sé á lífi, þetta er svo stórkostlegt líf að vera á fjöllum með þeim.“
Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik segir Ragnar Axelsson frá fyrstu kynnum sínum af Kristni fjallkóngi og smalamennsku á fjöllum. RAX var alls ekki vinsæll eftir hegðun sína í þessari fyrstu ferð, enda fór hann þvert á fyrirmælin sem honum hafði verið gefin eins og sjá má í þættinum.
Þessi mynd varð samt kveikjan að árlegum ferðum ljósmyndarans með fjallmönnum að smala Landmannalaugar, sem síðar varð svo að bók. Hann eingaðist líka vin fyrir lífstíð.
„Það var auðsótt mál þrátt fyrir að það hafi ekki byrjað vel og við urðum bestu vinir og höfum verið síðan,“ segir RAX en ljósmyndir hans af Kristni hafa birst víða í gegnum árin. Ljósmyndaranum þykir einstaklega vænt um þetta svæði landsins og þennan góða hóp.
„Þetta er partur af sjarma landsins einhvern veginn. Þetta er bara eitthvað sem er ekki hægt að lýsa.“
Hægt er að horfa á þáttinn Komið af fjöllum í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og er þessi þáttur um þrjár og hálf mínúta að lengd.
Hægt er að nálgast alla þættina af RAX Augnablik HÉR.
Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2 Maraþon.