Ekki var boðið upp á mikið fjör þegar tvö af bestu landsliðum heims leiddu saman hesta sína í riðli 3 í A-deild Þjóðadeildarinnar í París þar sem Heimsmeistarar Frakklands tóku á móti Evrópumeisturum Portúgals.
Helstu ofurstjörnur beggja liða voru með í leiknum en þrátt fyrir það var ekki mikið ris yfir leiknum.
Var ekkert mark skorað og úr varð stórmeistarajafntefli, 0-0.
Bæði lið taplaus eftir þrjá leiki en Portúgal er á toppi riðilsins með betri markatölu en Frakkar og hafa bæði lið 7 stig.
Markalaust jafntefli varð sömuleiðis niðurstaðan í Póllandi þar sem heimamenn tóku á móti Ítölum í riðli 1.