Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglubundins upplýsingafundar á mánudegi klukkan 14.
Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi, í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi og í textalýsingu að neðan fyrir þá sem eiga þess ekki kost að hlusta.
Uppfært: Fundinum er lokið en að neðan má sjá upptöku frá honum.