Erlent

Fellibylurinn Sally nálgast suðurströnd Bandaríkjanna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fellibylurinn Sally nálgast nú suðurströnd Bandaríkjanna óðfluga. Krossinn, sem sést á myndinni, er til minningar þeim sem létust vegna fellibyljarins Katrínu.
Fellibylurinn Sally nálgast nú suðurströnd Bandaríkjanna óðfluga. Krossinn, sem sést á myndinni, er til minningar þeim sem létust vegna fellibyljarins Katrínu. Getty/Joe Raedle

Fellibylurinn Sally nálgast nú suðurströnd Bandaríkjanna óðfluga. Talið er að óveðrið muni skella á nokkur ríkja suðurhluta Bandaríkjanna, þar á meðal Flórída, Mississippi og Alabama. Hitabeltisstormurinn Sally var skilgreind sem fellibylur síðdegis í dag, mánudag, og talið er að hann muni ríða yfir suðurströndina í fyrramálið.

Sérfræðingar segja að fellibylnum muni fylgja miklar rigningar og miklir vindar, sem geta orðið allt að 135 km/klst. á einhverjum svæðum. Þá geti honum fylgt mannskætt brim sem geti brotist upp á land. Sérfræðingar hafa einnig sagt að fellibyljir hafi verið mjög tíðir í ár miðað við önnur ár.

John Bel Edwards, ríkisstjóri Louisiana, varaði íbúa ríkisins við Sally á Twitter í dag og bað fólk um að vera varkárt. Louisiana varð illa úti eftir fellibylinn Láru sem reið yfir í síðasta mánuði og enn hefur ekki tekist að byggja upp það sem skemmdist þá.

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í bæði Alabama og Mississippi, en Sally hefur verið flokkuð sem fyrsta stigs fellibylur. Sally er nú um 280 km suðaustur af Biloxi í Mississippi og nálgast á ógnarhraða, eða á um 10 kílómetra hraða á klukkustund.

Fellibyljastofnun Bandaríkjanna gaf út í dag að stefna Sally hafi breyst nokkuð og að fellibylurinn muni ekki ríða yfir Louisiana. Hann geti hins vegar valdið miklum öldugangi og flóðbylgjum sem geti leitt af sér mikil flóð í ríkinu.

Íbúar í New Orleans sem ekki njóta verndar flóðvarnargarða hafa verið beðnir um að yfirgefa heimili sín.

Þá eru enn um 80 þúsund heimili í Louisiana enn rafmagnslaus vegna eftirmála fellibyljarins Láru en aðeins þrjár vikur eru liðnar frá því hann reið yfir. Auk Sally eru fjórir hvirfilbylir í vesturhluta Atlantshafsins – Paulette, Rene, Teddy og Vicky.


Tengdar fréttir

Búa sig undir annan fellibyl

Bandaríkjamenn sem búa við Mexíkóflóa undirbúa sig nú fyrir enn einn fellibylinn sem talið er að muni ná landi á morgun. Sally er nú skilgreind sem óveður en hún er á Mexíkóflóa að safna krafti fyrir ferðina inn á land og er áætlað að Sally nái fellibylsstyrk í kvöld.

Faraldurinn stöðvar ekki loftslagsbreytingar

Losun gróðurhúsalofttegunda stefnir í sama horf og áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn hóf innreið sína fyrr á þessu ári þrátt fyrir metsamdrátt.

Hundruð þúsunda án vatns og raf­magns

Íbúar stórs svæðis í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum gætu verið án rafmagns og rennandi vatns í nokkrar vikur, eftir að fellibylurinn Lára reið yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×