Ríkissjóður hefur þegar greitt tæpa átta milljarða króna vegna launakostnaðar starfsmanna á uppsagnafresti hjá fyrirtækjum tengd ferðaþjónustu síðustu mánuði.
Í lögum um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar fyrirtækja á uppsagnafresti starfsfólks sem tóku gildi í júní á þessu ári kemur fram að stuðningur ríkisins geti að hámarki verið 85% af launakostnaði launamanns á uppsagnafresti þó að hámarki 633.000 á mánuði.
Frá því lögin tóku gildi hafa 272 fyrirtæki nýtt sér úrræðið og hafa samtals fengið greitt um átta milljarða króna úr ríkissjóði.

Icelandair hefur fengið langmesta stuðninginn eða tæpa 2,9 milljarða króna vegna um 1900 starfsmanna. Flugleiðahótel eru næst stærst með 452 milljónir króna vegna 480 starfsmanna, Þá hefur Bláa lónið hefur fengið 425 milljónir vegna 540 starfsmanna. Átta fyrirtæki hafa fengið 100-200 milljónir í uppsagnastyrki.
Ef rýnt er í listann af handahófi sést að Flugfélag Íslands hefur fengið 70 milljónir króna, Guide to Iceland um 28 milljónir, Landnámsetrið 18 milljónir, Hótel Húsafell 7,5 milljónir, Grillmarkaðurinn 6,2 milljónir og Tix miðasala um 4,6 milljónir króna.

Uppsagnafrestur starfsfólks er ýmist liðinn eða lýkur um næstu eða þar næstu mánaðarmót en fram kom í hádegisfréttum hjá formanni Samtaka ferðaþjónustunnar að um 90% af starfsfólki í greininni verði horfið úr greininni á næstu mánuðum. Úrræði stjórnvalda dugi skammt.
Kallar eftir frekari styrkjum
Enn er kallað eftir aðgerðum til hjálpar ferðaþjónustunni. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 að mikilvægt sé að halda lykilfólki áfram í starfi svo hægt sé að rétta ferðaþjónustuna við hraðar þegar hægt verður að fara aftur á fulla ferð.
Hann segir mikilvægt að ferðaþjónustan fái sértæka styrki til að „halda loganum lifandi.“
„Þetta snýst allt um það að verja verðmætasköpunaraflið sem liggur í útflutningsatvinnugreinunum, þar er ferðaþjónustan líklegust til að vera kvikust á fæturna fram í tímann þannig að við þurfum að halda loganum lifandi,“ segir Jóhannes.

„Að geta haldið fólkinu, lykilfólkinu sem er með þekkinguna, viðskiptasamböndin, sér um fasteignirnar og tækin, selur inn í næsta sumar til þess að við fáum það út úr greininni sem við getum fengið sem samfélag. Það lágmarkar þá kostnaðinn sem við tökum út á þeim enda. Í rauninni snýst þetta um að leggja minna fé núna fram til að viðhalda verðmætasköpunaraflinu til að fá meira út úr því þegar við komumst af stað aftur.“
Hann segir skynsamlegt að ferðaþjónustan fái beina styrki til að halda fólki í starfi. Hann eigi þá ekki við víðtæka styrki heldur styrki til að halda lykilfólki í starfi. „Við erum með kerfi í gegn um uppsagnarstyrkina sem kemur í veg fyrir misnotkun, það er hægt að nýta það áfram, og það þýðir að við eigum möguleika á að halda loganum lifandi hjá fyrirtækjum sem að skapa verðmæti fyrir okkur öll inn í næsta ár.“