Daníel og Erika sigurvegarar í Rallý Reykjavík Bragi Þórðarson skrifar 6. september 2020 23:15 Daníel keypti bílinn af Ragnari Bjarna Gröndal, sem varð Íslandsmeistari á honum árið 2018. Vísir/Bergur Bergsson
Lengsta rallkeppni ársins kláraðist á laugardag eftir þriggja daga keppni. Alls þurftu áhafnir að aka tæpa þúsund kílómetra, þar af 342 á sérleiðum. Þar fór það svo að Daníel Sigurðarson og Erika Eva Arnarsdóttir enduðu sem sigurvegarar. Keppnin byrjaði seinni part fimmtudags er eknar voru tvær ferðir um Djúpavatnssérleiðina. Þar voru hraðastir Íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson. Þeir misstu þá alla möguleika á að verja titil sinn þegar að gírkassinn í Subaru Impreza bíl þeirra gaf sig í hádegi annars keppnisdags. Baldur og Heimir voru hraðastir í bleytunni á Djúpavatni á fimmtudaginn. Daníel og Erika hröð á hvaða bíl sem er Föstudagurinn var lengsti dagur keppninnar er eknar voru sérleiðir í grennd við Heklu. Þar voru það Daníel Sigurðarson og Erika Eva Arnarsdóttir sem keyrðu hraðast á sínum Mitsubishi Lancer Evo VI. Daníel festi kaup á bílnum aðeins viku fyrir keppni eftir að ekki náðist að gera við vélarbilun sem kom upp í Skoda Fabia S2000 rallýbíl hans í síðustu keppni. Orðrómar voru á lofti um að árangur Daníels og Eriku í síðustu mótum mætti rekja til þess að Skodinn væri mun hraðari en Mitsubishi og Subaru bílarnir. Óhætt er að segja að Daníel og Erika þögguðu niður í þeim röddum á föstudaginn. Baldur og Heimir voru hraðastir í bleytunni á Djúpavatni á fimmtudaginn.Vísir/Bergur Bergsson Gunnar Karl og Ísak héldu pressu á Daníel og Eriku Gunnar Karl Jóhannesson og Ísak Guðjónsson á Mitsubishi Lancer Evo X keyrðu greitt á föstudaginn en gátu ekki hangið í Daníel og Eriku, þá sérstaklega á sérleiðinni um Heklu. ,,Ég þoli ekki að tapa, að lenda í öðru sæti er það leiðinlegasta sem ég get hugsað mér’’ sagði Gunnar Karl í hádegishléinu á föstudag og lofaði að gefa ekkert eftir. Fyrir lokadag rallsins höfðu Daníel og Erika rúmlega mínútu í forskot. Það reyndist of stór biti fyrir Gunnar Karl og Ísak sem urðu að sætta sig við annað sætið. Þeir gáfust þó ekki upp fyrr en í fulla hnefana og náðu besta tíma á síðustu sérleiðinni, þrátt fyrir að koma í mark á sprungnu dekki. Gunnar Karl og Ísak aka tíundu útgáfunni af Mitsubishi Lancer EvoVísir/Bergur Bergsson Gunnar Karl og Ísak aka tíundu útgáfunni af Mitsubishi Lancer Evo ,,Þetta er toppurinn’’ Daníel og Erika stóðu uppi sem sigurvegarar í Rallý Reykjavík árið 2020. ,,Það þarf svo margt að ganga upp í svona maraþon ralli, þú þarft bæði góðan aðstoðarökumann og gott lið’’ sagði Daníel í endamarki eftir tæplega þúsund kílómetra akstur. ,,Þetta er toppurinn!’’ Þetta var fimmti sigur Daníels Sigurðarsonar í Rallý Reykjavík og er hann því næst sigursælasti ökuþór í 41 árs sögu keppninnar, einum sigri á eftir Sigurði Braga Guðmundssyni. Annað sætið, og þrjú aukastigin sem fást fyrir hraðasta tímann á svokallaðri ofurleið, þíða að Gunna Karl og Ísak eru nú með 16,5 stiga forskot á toppi Íslandsmótsins. Aðeins ein keppni er eftir af tímabilinu og nægir þeim að enda í sjöunda sæti í haustrallinu. Halldór Vilberg og Valgarður Thomas færðu sig upp um flokk fyrir þetta tímabilVísir/Bergur Bergsson Mikill slagur um öll sæti Í þriðja sætinu, annað árið í röð, urðu Halldór Vilberg Ómarsson og Valgarður Thomas Davíðsson á Subaru Impreza. Þeir félagar mættu á nýjum 6 strokka Subaru í vor til þess að fara berjast á toppnum. En slagurinn er það harður í rallinu í ár að þrátt fyrir að hraðaaukningin hefur verið mikil hjá Halldóri og Valgarði urðu þeir að sætta sig við þriðja sætið eins og í fyrra. Í byrjun þriðja keppnisdags var mikill slagur um fjórða sætið milli Baldurs Haraldssonar og Katrínar Maríu Andrésdóttur annars vegar og Fylkis Jónssonar og Heiðu Fylkisdóttur hinsvegar. Á sérleið um Kaldadal lentu Baldur og Katrín í því að aka útaf og festast ofan á grjóti. Við það töpuðu þau 11 mínútum og enduðu rallið í sjötta sæti. Feðginin Fylkir og Heiða Karen náðu fjórða sætinu þrátt fyrir að aka nánast alla síðustu sérleiðina á sprungnu dekki. Í fimmta sæti voru Skafti Skúlason og Sigurjón Þór Þrastarson. Ívar Örn og Guðni luku keppni með fimm mínútur í forskot á næsta bíl í AB Varahluta flokknum.Vísir/Bergur Bergsson Ívar Örn og Guðni luku keppni með fimm mínútur í forskot á næsta bíl í AB Varahluta flokknum. Ívar orðinn Íslandsmeistari Sigurvegarar í AB Varahlutaflokki urðu Ívar Örn Smárason og Guðni Freyr Ómarsson og tryggði Ívar sér einnig Íslandsmeistaratitilinn í flokknum. ,,Þetta er alveg frábært eftir öll þessi ár sem maður hefur verið í kringum þetta, að loksins geta kallað sig Íslandsmeistara’’ sagði Ívar sem hafði nóg að fagna, enda átti hann afmæli daginn sem rallið kláraðist. Titillinn er sá 29. fyrir Subaru í íslensku ralli sem gerir bílaframleiðandann þann sigursælasta í 45 ára sögu ralls á Íslandi. Í öðru sæti í flokknum og jafnframt síðasta sæti yfir heildina urðu Kristján Pálsson og Samúel Þór Seastrand. Síðasta umferð Íslandsmótsins í ralli fer fram um næstu mánaðarmót.
Íþróttir Akstursíþróttir Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Fleiri fréttir „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Í beinni: Ísland - Tyrkland | Strákarnir geta tryggt sig inn á EM Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Sú yngsta í sögunni til að vinna: „Var rosalega stressuð“ Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sjá meira