Afganski forsetinn hafnar samkomulagi um fangaskipti Andri Eysteinsson skrifar 1. mars 2020 09:58 Ghani hélt sameiginlegan blaðamannafund með Jenst Stoltenberg og Mark Esper í Kabúl í gær Getty/Anadolu
Forseti Afganistan segir það ekki rétt að ríkið hafi lofað að frelsa 5000 Talíbana úr fangelsum ríkisins líkt og haldið er fram í friðarsamningi milli Bandaríkjanna og Talíbana.Í friðarsamningnum sem undirritaður var í Katar í gær sagði að fimm þúsund Talíbönum yrði sleppt úr fangelsum í skiptum fyrir 1000 ríkisstarfsmenn. BBC greinir frá að fangaskiptin ættu samkvæmt samkomulaginu að fara fram fyrir 10.mars næstkomandi.Ashraf Ghani, forseti Afganistan, neitaði því að ríkið hefði samþykkt fangaskiptin og sagði það undir afgönsku ríkisstjórninni komið en ekki þeirri bandarísku. „Fangaskiptin geta verið umræðuefni í viðræðum milli ríkisstjórnar okkar og Talíbana en ekki forsenda þeirra,“ sagði Ghani.Talið er að allt að 10.000 Talíbanar séu í haldi í Afganistan. Í samningnum sem undirritaður var í gær kváðust Bandaríkin reiðubúin til að kalla alla sína hermenn aftur heim standi Talíbanar við ákveðnar skuldbindingar, þar á meðal að semja um frið við afgönsku ríkisstjórnina.
Afganistan Bandaríkin Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira