Rannsakendur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum bera vitni í máli Guðjóns Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. febrúar 2020 07:45 Aðalmeðferð í máli Guðjóns Skarphéðinssonar gegn ríkinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 17. mars næstkomandi. vísir/vilhelm
Andri Árnason, settur ríkislögmaður í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, hyggst leiða tvo menn sem komu að rannsókn málanna á sínum tíma sem vitni við aðalmeðferð í máli Guðjóns Skarphéðinssonar gegn ríkinu. Aðalmeðferðin fer fram þann 17. mars næstkomandi.Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag en Guðjón fer fram á 1,3 milljarða í bætur frá ríkinu vegna Geirfinnsmálsins. Ríkið krefst sýknu af öllum kröfum Guðjóns. Að því er fram kemur í Fréttablaðinu greindi ríkislögmaður frá því við undirbúningsþinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann ætlaði að leiða tvö vitni fyrir dóminn, ef heilsa þeirra leyfir. Hann vildi að svo stöddu ekki gefa upp nöfn vitnanna til að vernda þau en sagði þó að um væri að ræða einstaklinga sem hefðu komið að rannsókn málanna. „Ég vil ekki að þeir verði fyrir einhverju aðkasti ef þeir ætla að koma hér fyrir dóm,“ sagði Andri. Gerði dómari honum að tilkynna um nöfn vitnanna viku áður en aðalmeðferðin hefst. Að því er segir í frétt Fréttablaðsins er ekki víst hvort Guðjón sjálfur gefi skýrslu við aðalmeðferðina. Ítrekaði ríkislögmaður þá áskorun sína að stefnandi myndi mæta sjálfur fyrir dóm og gefa skýrslu um þau atvik málsins sem hann byggir á. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns, sagði óvíst að skjólstæðingur hans ætti heimangengt vegna slæmrar heilsu.
Dómsmál Guðmundar- og Geirfinnsmálin Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira