Erfingi rútufyrirtækisins orðinn leikmaður ÍA Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2020 09:15 Guðmundur Tyrfingsson og hans nýi þjálfari, Jóhannes Karl Guðjónsson. mynd/kfia.is
Knattspyrnumaðurinn efnilegi Guðmundur Tyrfingsson hefur samið um að leika fyrir ÍA næstu tvö árin, eða út keppnistímabilið 2022. Guðmundur, sem heitir í höfuðið á afa sínum, stofnanda samnefnds rútufyrirtækis, kemur til ÍA frá Selfossi þar sem hann hefur staðið sig vel þrátt fyrir ungan aldur. Hann er aðeins 17 ára en hefur þegar leikið 32 leiki í meistaraflokki fyrir Selfoss. Í þeim hefur hann skorað átta mörk, þar af fernu í bikarleik gegn Snæfelli í sumar. „Það er mjög jákvætt að fá Guðmund til félagsins. Guðmundur er ungur og efnilegur leikmaður sem passar vel inn í okkar uppbyggingu. Hann er líka með mikinn metnað til að ná langt í fótbolta og það er það sem við leitum að í leikmönnum hér á Skaganum, svo hann á bara eftir að vaxa og dafna og gera frábæra hluti í framtíðinni. Hann á framtíðina fyrir sér,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, á heimasíðu félagsins. Guðmundur á að baki níu leiki fyrir U17-landslið Íslands, auk landsleikja fyrir U18- og U16-lið. Þegar þetta er skrifað hafa félagaskipti hans ekki verið staðfest á vef KSÍ og því óvíst hvort Guðmundur verður í leikmannahópi ÍA í bikarleiknum við Val í kvöld. Næsti leikur Skagamanna í Pepsi Max-deildinni er gegn KA á útivelli á laugardaginn.
Íslenski boltinn UMF Selfoss ÍA Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira