Tottenham er komið í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir 3-2 sigur á Southampton í endurteknum leik liðanna í kvöld.
Mörkin úr leiknum má sjá með því að smella hér.
Leikurinn í kvöld var ansi fjörugur. Tottenham komst yfir á 12. mínútu er skot Tanguy Ndombele fór af Jack Stephens og í netið.
Á 34. mínútu var röðin komin að hinum funheita Shane Long sem fylgdi á eftir markvörslu Hugo Lloris og kom boltanum í netið.
Southampton midfielder James Ward-Prowse was taken off on a stretcher after suffering a suspected knee injury in the first half.
— BBC Sport (@BBCSport) February 5, 2020
More: https://t.co/gkLknsWRaZ#FACup#bbcfacuppic.twitter.com/UWmyHxCdCa
Rúmlega stundarfjórðungi fyrir leikslok var það Danny Ings sem kom Southampton yfir með frábærri afgreiðslu en sú forysta stóð ekki lengi.
Á 78. mínútu jafnaði Lucas Moura metin með skoti fyrir utan teig og á 87. mínútu fengu þeir vítaspyrnu. Á punktinn steig Heung-Min Son og hann skoraði af miklu öryggi.
7 - Lucas Moura has been directly involved in seven goals in nine starts for Spurs in the FA Cup, scoring three and providing four assists. Remedy. pic.twitter.com/SmkX0Ng0oI
— OptaJoe (@OptaJoe) February 5, 2020
Ekki urðu mörkin fleiri og Jose Mourinho og lærisveinar komnir í 16-liða úrslitin. Þeir mæta Norwich í næstu umferð.
Sextán liða úrslitin verða spiluð 3. til 5. mars:
Sheffield Wednesday - Manchester City
Reading - Sheffield United
Chelsea - Liverpool
West Brom - Newcastle
Leicester - Birmingham
Derby - Manchester United
Tottenham - Norwich
Portsmouth - Arsenal