Læknir sem reyndi að vara við kórónuveiru látinn Kjartan Kjartansson skrifar 6. febrúar 2020 16:09 Mikill viðbúnaður hefur verið víða um heim vegna kórónuveirunnar sem Li Wenliang reyndi að vara kollega sína við í desember. AP/Arek Rataj
Kínverskur læknir sem reyndi fyrstur manna að vara við kórónuveirufaraldri í Wuhan er látinn af völdum veirunnar, að sögn kínverskra fjölmiðla. Lögreglan í borginni reyndi að þagga niður í honum þegar yfirvöld reyndu að halda leynd yfir veirunni. Li Wenliang var 34 ára gamall augnlæknir á sjúkrahúsi í Wuhan. Hann sendi öðrum læknum viðvörun vegna útbreiðslu kórónuveirunnar 30. desember. Ráðlagði hann læknunum að klæðast hlífðarklæðum til að forðast smit. Lögreglumenn höfðu í kjölfarið afskipti af Li og skipuðu honum að hætta því. Li var látinn skrifar undir bréf þar sem hann var sakaður um að setja fram „falskar fullyrðingar“ sem höfðu „raskað verulega allsherjarreglu“. Yfirvöld báðu Li síðar afsökunar. Skömmu síðar smitaðist Li af veirunni. Í færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo lýsti hann því hvernig hann byrjaði að hósta 10. janúar. Daginn eftir fékk hann hita og tveimur dögum síðar var hann lagður inn á sjúkrahús. Hann greindist með kórónuveiru 30. janúar. Alls hafa nú fleiri en 560 manns látið lífið af völdum kórónuveirunnar og fleiri en 28.000 smitast, langsamlega flestir í Kína, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Læknir sem varaði við Wuhan-veirunni var ávítaður af yfirvöldum og smitaðist svo sjálfur Kínverskur læknir, búsettur í kínversku borginni Wuhan þar sem nýr kórónaveirufaraldur er talinn eiga upptök sín, hefur verið hylltur sem hetja eftir að hann varaði við veirunni þegar hún uppgötvaðist fyrst í desember. 4. febrúar 2020 13:28 Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira
Læknir sem varaði við Wuhan-veirunni var ávítaður af yfirvöldum og smitaðist svo sjálfur Kínverskur læknir, búsettur í kínversku borginni Wuhan þar sem nýr kórónaveirufaraldur er talinn eiga upptök sín, hefur verið hylltur sem hetja eftir að hann varaði við veirunni þegar hún uppgötvaðist fyrst í desember. 4. febrúar 2020 13:28