Íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir hefur í gegnum tíðina sýnt ótrúlega elju og seiglu í CrossFit keppnum og alls fimm sinnum komist upp á verðlaunapall þar af tvisvar sinnum sem heimsmeistari.
Anníe Mist hefur nú sagt frá fæðingu dóttur sinnar sem kom í heiminn mánudaginn 10. ágúst 2020 eftir erfiða og langa fæðingu.
„Ég bjóst við að fæðingin yrði eins og 99 prósent af öðrum fæðingum á Íslandi en það fór ekki svo. Ég ætla ekki að fara í smáatriði en þetta er það erfiðasta sem hef ég þurft að gera,“ skrifaði Anníe Mist.
„Meðgangan var ótrúlegt. Ég gat æft og hreyft mig allan tímann og leið vel bæði á líkama og sál,“ skrifaði Anníe.
Anníe Mist segir síðan frá fæðingunni en allt fór af stað á laugardaginn 8. ágúst þegar hún var komin þrjá daga fram yfir. Anníe Mist vaknaði um morguninn með hríðir og var lögð inn á spítalann klukkan tíu um kvöldið.
„Ég fékk verkjalyf til að hjálpa mér að sofa og útaf af Covid-19 þá varð ég að vera ein því Frederik mátti ekki koma inn strax, skrifaði Anníe Mist eins og sjá má hér fyrir neðan.
„Frederik mátti ekki koma til mín fyrr en klukkan þrjú daginn eftir,“ skrifaði Anníe og hélt áfram:
„Við komust að því að höfuðið hennar var ekki í réttri stöðu sem þýðir að hún þurfti mun meira pláss til að komast út. Við vonuðumst til að hún myndi laga sig sjálf og starfsfólkið gerði nokkrar tilraunir til að snúa henni en án árangurs,“ skrifaði Anníe Mist.
Læknarnir voru farnir að undirbúa keisaraskurðinn en Anníe Mist var ekki búinn að gefast upp.
„Það voru tíu í herberginu þar af voru fjögur þeirra að halda mér á meðan ég rembdist. Það tók fimm tilraunir til að koma henni af stað og með erfiðasta átaki mínu á ævinni þá náðum mér henni út,“ skrifaði Anníe Mist.
„Á mánudaginn var klukkan 12.16, ég veit ekki eftir hversu marga klukkutíma, þá kom stúlkan mín í heiminn. Það heyrðist hins vegar ekkert í henni og það voru nokkrar af lengstu mínútum á minni ævi. Þá heyrðist loksins hár grátur og hún er hundrað prósent heilbrigð,“ skrifaði Anníe
Stelpan hennar var 3904 grömm og 54 sentímetrar á lengd eða næstum því sextán merkur.
„Um leið og hún tók sinn fyrsta andardrátt þá varð hún það mikilvægasta í mínum heimi. Ég er svo þakklát ljósmæðrunum sem hugsuðu um mig á sjúkrahúsinu og fyrir læknana að fylgjast með mér og hjálpuðu mér að koma demantinum mínum örugglega í heiminn,“ skrifaði Anníe.
Fæðingin tók hins vegar gríðarlega mikið á hana og fram undan er löng endurhæfing.
„Ég endaði á því að missa meira en tvo lítra af blóði og það mun taka mig langan tíma að ná mér,“ skrifaði Anníe.
„Ég er kannski ekki ég sjálf í dag og þetta gæti tekið einhvern tíma. Ég þarf hjálp við einföldustu hluti en ég mun ná mér. Ég hef Frederik og stelpuna mína mér við hlið“ skrifaði Anníe Mist.