Hildur Guðnadóttir tónskáld vann í gær Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Hildur ljómaði þegar hún tók við verðlaununum og var hún klædd í einstakan kjól. Hún hefur nú þegar unnið Golden Globe verðlaun og er tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tónlistina í kvikmyndinni um Jókerinn, vinni hún þau verðlaun verður hún fyrsti Íslendingurinn til þess að hljóta Óskarsverðlaun.
Á meðal þeirra sem vöktu einnig athygli á hátíðinni í gær voru Ariana Grande, Lizzo, FKA Twigs, Grace Elizabeth, Rosalia, Dua Lipa og Billie Eilish sem hlaut fimm verðlaun í gær. Meira um verðlaunahafa kvöldsins má finna hér á Vísi.







