Grýla í ríflega hálfa öld Sylvía Hall skrifar 5. janúar 2020 18:44 Þórður Hallgrímsson og Birgir Guðjónsson máta búninga Grýlu og Leppalúða fyrir þrettándann 2017. SIGVA media
Heimildarmyndin Þrettándinn verður sýnd á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:05. Myndin fjallar um þrettándagleðina í Eyjum sem hefur verið haldin óslitið frá árinu 1948. Um 200 sjálfboðaliðar koma að hátíðinni þar sem Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur kveðja jólahátíðina með Eyjamönnum og gestum þeirra. Undanfarin fimm ár hefur hátíðin verið mynduð fyrir framleiðslu heimildarmyndar. Viðtöl hafa verið tekin við fólk sem hefur komið að undirbúningi og framkvæmd þrettándagleðinnar til margra ára og jafnvel áratuga. Sighvatur Jónsson kvikmyndagerðarmaður gerir myndina ásamt Geir Reynissyni, Eyjamanni í þrettándahópnum, og Hrefnu Díönu Viðarsdóttur þjóðfræðingi sem árið 2012 gerði BA-ritgerð um þrettándagleði Vestmanneyinga. Heimir Hallgrímsson og Birgir Guðjónsson undirbúa sig fyrir hlutverk Grýlu og Leppalúða fyrir þrettándann 2016.SIGVA media Rík fjölskylduhefð til áratuga Meðal viðmælenda myndarinnar er Birgir Guðjónsson sem hefur aðstoðað Grýlu á þrettándanum í Eyjum í ríflega hálfa öld. Birgir tók við af föður sínum sem var alltaf kallaður Gaui Manga. Fjölskyldan er ein þriggja fjölskyldna sem hafa byggt hátíðina upp og starfað við hana í áratugi. Knattspyrnufélagið Týr kom að þrettándanum í fyrsta sinn árið 1948 með blysgöngu eins og skátahreyfingin í Eyjum hafði gert um árabil. Knattspyrnufélagið Týr tók á endanum við kyndlinum. Eftir sameiningu íþróttafélaganna Týs og Þórs hefur þrettándagleðin í Eyjum verið haldin undir merkjum ÍBV frá árinu 1997. Höfundar myndarinnar ásamt fulltrúum einnar fjölskyldunnar sem hefur komið að þrettándanum í Eyjum í áratugi. Frá vinstri: Anna Sigríður Grímsdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Sighvatur Jónsson, Birgir Guðjónsson og Geir Reynisson. Mynd/Tryggvi Már Sæmundsson.Tryggvi Már Sæmundsson Frumsýnd í kvikmyndahúsum milli hátíða Heimildarmyndin Þrettándinn var frumsýnd í kvikmyndahúsum í Reykjavík og Vestmannaeyjum 27. desember síðastliðinn. „Viðtökur hafa verið frábærar,“ segir Sighvatur Jónsson, einn höfunda myndarinnar. „Við sýndum Þrettándann á samtals átta sýningum í Háskólabíói og Eyjabíói. Hún verður svo sýnd á Stöð 2 í kvöld kl. 19.05.“ Halldór Gunnar Pálsson og Ragnhildur Gísladóttir sömdu tónlist myndarinnar sem er í anda þrettándagleðinnar. Þá er Ragnhildur sögumaður Þrettándans, heimildarmyndar um þrettándagleðina í Eyjum. Sighvatur gerði heimildarmyndina Fólkið í Dalnum, um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, ásamt Skapta Erni Ólafssyni sem var frumsýnd um miðjan júlí síðastliðið sumar. „Heimildarmyndirnar um þjóðhátíð og þrettánda voru í raun unnar samhliða þar sem hátíðirnar voru myndaðar í fimm ár. Það var mjög ánægjulegt að ná að klára þær báðar á sama árinu. Það er ekki algengt að ná að frumsýna tvær myndir á einu ári,“ segir Sighvatur.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Lífið Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Lífið Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia Lífið samstarf Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira