Valur og KR mætast í upphafsleik Pepsi Max-deildar karla Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. janúar 2020 16:12 KR-ingar tollera þjálfara sinn, Rúnar Kristinsson, eftir að þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með 0-1 sigri á Valsmönnum á Hlíðarenda síðasta haust. Titilvörn KR hefst á sama stað. vísir/bára
Íslandsmeistarar KR sækja Val heim í upphafsleik Pepsi Max-deildar karla miðvikudaginn 22. apríl. Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum Pepsi Max-deildar karla tímabilið 2020. Niðurröðun Pepsi Max-deildar karla má sjá með því að smella hér. KR tryggði sér 27. Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með 0-1 sigri á Hlíðarenda í haust. Titilvörn KR-inga 2020 hefst á sama stað. Valur og KR mættust í upphafsleik Pepsi-deildarinnar fyrir tveimur árum. Valsmenn unnu þá dramatískan 2-1 sigur frammi fyrir fjölda áhorfenda. Í 1. umferðinni mætast einnig Breiðablik og Grótta. Þetta er fyrsti leikur Seltirninga í efstu deild frá upphafi. Breiðablik og Grótta skiptu á þjálfurum, ef svo má segja, í haust. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við Breiðabliki eftir að hafa stýrt Gróttu upp um tvær deildir á jafn mörgum árum. Ágúst Gylfason, sem stýrði Breiðabliki í tvö ár, tók við starfi Óskars hjá Gróttu. Hinir nýliðirnar í Pepsi Max-deildinni, Fjölnir, sækja bikarmeistara Víkings R. heim í 1. umferðinni. HK tekur á móti FH í Kórnum, KA sækir ÍA heim og Stjarnan og Fylkir mætast í Garðabænum. Í lokaumferðinni mætir Heimir sínu gamla liði, FH, á Hlíðarenda. Stjarnan tekur á móti Breiðabliki og KR og Grótta mætast á Meistaravöllum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ Sjá meira