Segir að skála ætti í kampavíni fyrir nýja olíuvinnslusvæðinu Kristján Már Unnarsson skrifar 9. janúar 2020 22:15 Sylvi Listhaug, olíumálaráðherra Noregs, lent á Johan Sverdrup-svæðinu í Norðursjó, til að vera við opnunarathöfnina. Mynd/Arne Reidar Mortensen, Equinor.
Norðmenn hafa formlega tekið í notkun eitt verðmætasta olíuvinnslusvæði í sögu Noregs. Það kom í hlut Ernu Solberg forsætisráðherra að opna svæðið eftir að Haraldur Noregskonungur forfallaðist á síðustu stundu vegna veikinda. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2. Svæðið er í Norðursjó, um 140 kílómetra vestur af Stafangri, kallast Johan Sverdrup, og það þykir sæta furðu að olían þar fannst ekki fyrr en árið 2010. Svo þýðingarmikið er svæðið talið fyrir efnahag Noregs að það þótti við hæfi að fá Harald Noregskonung til að opna það. Erna Solberg forsætisráðherra lent á þyrlupalli olíuvinnslusvæðisins.Mynd/Arne Reidar Mortensen, Equinor. Konungur veiktist hins vegar á síðustu stundu og liggur nú á sjúkrahúsi í Osló. Því kom það í hlut Ernu Solberg forsætisráðherra að leiða vígsluathöfnina í fyrradag ásamt forystumönnum ríkisolíufélagsins Equinor. Olíulindir svæðisins eru svo gjöfular að þær eru taldar framlengja olíuævintýri Norðmanna um hálfa öld. „Þetta er stórt framlag til velferðar okkar í framtíðinni. Hérna verður framleitt fyrir 200 milljónir á sólarhring. Það eru verðmæti héðan sem munu styðja rekstur sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og skóla og alls sem við þurfum,“ sagði Erna Solberg þegar hún formlega gangsetti vinnslusvæðið. Erna Solberg í viðtali við TV-2 í Noregi.Mynd/TV 2, Noregi. Skipan hinnar umdeildu Sylvi Listhaug í embætti olíumálaráðherra fyrir jól þykir undirstrika þá stefnu norsku ríkisstjórnarinnar að gefa ekkert eftir í olíuleit. Þegar fréttamaður hins norska TV-2 spurði hana um þau sjónarmið umhverfisverndasamtaka að opnun nýja olíusvæðisins væri ekkert fagnaðarefni svaraði hún að þvert á móti ætti að skála í kampavíni. Sylvi Listhaug, nýskipaður olíumálaráðherra, er einn umdeildasti stjórnmálamaður Noregs.Mynd/TV-2, Noregi. „Þessu ber að fagna með kampavíni vegna þess að þetta vinnslusvæði framleiðir olíu og gas með mjög lítilli losun. Við tölum hér um 700 grömm á hvert olíufat en meðaltalið í heiminum er 18 kíló, þannig að ef menn vilja minni losun þá er afar mikilvægt að Noregur haldi áfram olíu- og gasframleiðslu, sem er í fararbroddi tækniþróunar sem leiðir til umhverfisvænni jarðar,“ sagði Sylvi Listhaug olíu- og orkumálaráðherra. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Bensín og olía Loftslagsmál Noregur Umhverfismál Tengdar fréttir Besta ár olíusjóðsins, óx um 4,7 milljónir kr. á hvern íbúa Norski olíusjóðurinn hefur aldrei í sögunni verið jafn stór og aldrei vaxið jafn mikið eins og á nýliðnu ári. Heildareignir sjóðsins námu í loks árs um 10.500 milljörðum norskra króna. 3. janúar 2020 11:11 Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32 Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12 Nýjustu olíulindir taldar tryggja auðlegð Noregs næstu áratugi Norðmenn hófu um helgina að dæla olíu upp af Johan Sverdrup-svæðinu, en þar eru einhverjar verðmætustu olíulindir sem fundist hafa í lögsögu Noregs. 7. október 2019 20:27 Thunberg hafnaði norrænum verðlaunum í mótmælaskyni Sænska táningsstúlkan sagði heiminn þurfa á loftslagsaðgerðum að halda, ekki fleiri umhverfisverðlaunum. 29. október 2019 20:12 Nýr olíumálaráðherra sagði loftlagsumræðu áróðursbragð vinstrimanna Sylvi Listhaug, einn umdeildasti stjórnmálamaður Noregs, er óvænt orðin olíu- og orkumálaráðherra. Listhaug þykir standa yst á hægri væng stjórnmálanna. 21. desember 2019 08:02 Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Besta ár olíusjóðsins, óx um 4,7 milljónir kr. á hvern íbúa Norski olíusjóðurinn hefur aldrei í sögunni verið jafn stór og aldrei vaxið jafn mikið eins og á nýliðnu ári. Heildareignir sjóðsins námu í loks árs um 10.500 milljörðum norskra króna. 3. janúar 2020 11:11
Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32
Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12
Nýjustu olíulindir taldar tryggja auðlegð Noregs næstu áratugi Norðmenn hófu um helgina að dæla olíu upp af Johan Sverdrup-svæðinu, en þar eru einhverjar verðmætustu olíulindir sem fundist hafa í lögsögu Noregs. 7. október 2019 20:27
Thunberg hafnaði norrænum verðlaunum í mótmælaskyni Sænska táningsstúlkan sagði heiminn þurfa á loftslagsaðgerðum að halda, ekki fleiri umhverfisverðlaunum. 29. október 2019 20:12
Nýr olíumálaráðherra sagði loftlagsumræðu áróðursbragð vinstrimanna Sylvi Listhaug, einn umdeildasti stjórnmálamaður Noregs, er óvænt orðin olíu- og orkumálaráðherra. Listhaug þykir standa yst á hægri væng stjórnmálanna. 21. desember 2019 08:02