Sendir gömlu kærustunni skilaboð í hverju fagni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2020 12:30 Hringdu í mig. Gabriel Jesus sendir gömlu kærustunni í Brasilíu skilaboð í hverju fagni nú þegar hann lifir ljúfa lífinu sem leikmaður Manchester City. Getty/Simon Stacpoole
Brasilíumaðurinn Gabriel Jesus verður í sviðsljósinu hjá Manchester City í úrslitakeppni Meistaradeildarinnar á næstu dögum en enska liðið treystir meira á hann í meiðslum Sergio Aguero. Gabriel Jesus kom til Manchester City árið 2017 og hefur þegar skorað 68 mörk fyrir félagið í öllum keppnum. Á þessu tímabili er Gabriel Jesus kominn með 23 mörk þar af sex þeirra í sjö leikjum í Meistaradeildinni. Margir hafa velt fyrir sér fagni Gabriel Jesus en hann fagnar hverju marki með því að þykjast vera að tala í síma. Nú hefur hann sagt frá hvað hann er að gera í þessu fagni. Give Me Sport hefur það eftir Gabriel Jesus að brasilíski framherjinn sé þarna að senda fyrrum kærustu sinni skilaboð. „Fagnið mitt er skilaboð til gamallar kærustu minnar sem svaraði ekki símtölunum mínum þegar ég var hjá Palmeiras en sendi mér skilaboð um leið og ég fór til City,“ sagði Gabriel Jesus. Manchester City keypti Gabriel Jesus fyrir 27 milljónir punda í janúar 2017 en hann var þá ekki búinn að halda upp á tvítugsafmælið sitt. Hann kom til Englands með móður sinni, eldri bróður og tveimur vinum. Gamla kærastan varð aftur á móti eftir í Brasilíu. Það er von á fleirum kærustu-fögnum á næstunni því hann hefur verið sjóðheitur í Meistaradeildinni. Gabriel Jesus skoraði í báðum leikjunum á móti Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hefur nú skorað fimm mörk í síðustu þremur leikjum sínum í Meistaradeildinni. Manchester City spilar við Lyon í átta liða úrslitunum og fer leikurinn fram á laugardaginn. Allir leikir Meistaradeildarinnar verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira