Sjálfskaparvítið er algert hjá ábyrgðarlausum stjórnvöldum Vilhelm Jónsson skrifar 4. ágúst 2020 12:04 Covid-19 er að birtast Íslendingum aftur af fullum þunga vegna dómgreindarleysis stjórnvalda að endurvekja hagkerfið með óábyrgum hætti. Á sama tíma og yfirvöld biðla til þjóðarinnar að höfða til ábyrgðarkenndar gagnvart sóttvörnum streyma óábyrgir Íslendingar og ferðamenn til og frá landinu, eftirlitslítið í boði stjórnvalda. Það er til lítils fyrir hluta þjóðarinnar að sýna samfélagslega ábyrgð meðan stjórnvöld láta stjórnast af þrýstingi frá sérhagsmunaröflum, sem láta sig litlu varða hagsmuni og heilbrigði landsmanna. Afraksturinn vegna afléttingar hafta á landamærum er að koma í ljós af mun meiri þunga en hefði þurft að eiga sér stað, einnig fyrir þá sem létu hvað hæst um að opna þyrfti landið, forkólfar ferðaþjónustunnar, sem munu uppskera eins og þeir sáðu. Til að kóróna bullið er skimun við landamæri framkvæmd frjálslega og með óábyrgum hætti. Það er löngu komið nóg af orðahjali hjá svokölluðu þríeyki og stjórnvöldum að höfða til ábyrgðarkenndar hjá almenningi. Á sama tíma og sóttvarnalækni hefur tekist að heilaþvo þjóðina um að sóttvarnagrímur séu gagnslausar krefjast heilbrigðisyfirvöld að almenningur noti grímur (sem eru síðan illfáanlegar) þar sem ekki er hægt að koma tveggja metra reglunni við. Furðu sætir að sóttvarnalæknir leyfi sér að efast um að grímur komi að gagni, ef horft er til notkun þeirra víðast hvar um heimsbyggðina. Það er tímabært að landlæknir hafi annað og meira fram að færa á svokölluðum stöðufundum en innantómt þakkarhjal yfir ekki neinu á sama tíma og heilbrigðiskerfið er á hliðinni. Tengill almannavarna með gylltu borðana ætti einnig að láta af orðahjali sínu um hversu góð við eigum að vera hvert við annað og höfða til ábyrgðarkenndar. Mun eðlilegra væri að teymið beindi tilmælum sínum til stjórnvalda að gæta sinnar samfélagslegu ábyrgðar. Ekki síst þar sem heilbrigðisyfirvöld ásamt stjórnvöldum halda vart vatni yfir hvað allt hafi tekist vel varðandi Covid-19. Ellilífeyrisþegar, fólk með undirliggjandi sjúkdóma og fleiri, sem þurft hafa að sæta ströngum sóttvörnum mánuðum saman, þurfa enn og aftur að takast á við afleiðingar vegna núverandi sjálfskaparvítis stjórnvalda vegna utanaðkomandi þrýstings sérhagsmunarafla. Það eru líklega engin lýsingarorð til að lýsa því hvað sumt fólk hefur þurft að þola til að komast í gegnum margra mánaða sóttvarnir, sem sér ekki fyrir endann á. Stjórnvöld ættu að íhuga hvað þau hafa gert til að létta þjáningar þeirra sem eru læstir inni á elli- og hjúkrunarheimilum og sjá ekki ástvini mánuðum saman. Stjórnvöld ættu einnig að íhuga (fari allt á versta veg í rússnesku rúllettunni sem þau sköpuðu sér) að þau munu ekki geta fríað sig allri ábyrgð, ef allt fer á versta veg. Forstjóri Landspítalans var nánast jarðsettur í byrjun árs af sænskum sérfræðingum hversu óhæfir stjórnarhættir væru viðhafðir innan spítalans og hversu bágur rekstur bráðamóttöku væri. Engu að síður hefur forstjórinn, ásamt heilbrigðisráðherra, fengið að rausa óáreittur mánuðum saman á svokölluðum stöðufundum þar sem hann bendir í sífellu á hversu spítalanum sé vel stjórnað. Það er löngu orðið tímabært að stjórnarhættir Landspítalans séu teknir til endurskoðunar þar sem hann stendur vart undir kröfum sem gerðar eru til dýraspítala í nágrannalöndunum. Rekstur spítalans einkennist af margra ára biðlistum og óstjórn með tilheyrandi þjáningum og hörmungum fyrir þúsundir sjúklinga vegna læknamistaka og langra biðlista undangenginna ára. Í ofanálag er tæplega gert ráð fyrir að sérfræðingar spítalans og aðrir séu tiltækir til starfa um helgar, nema stórslyss eigi sér stað. Það er íhugunarefni hve margir hafa kvatt þetta líf vegna þess að þjónusta um helgar og á kvöldin er ábótavant hjá svokölluðu háklassa sjúkrahúsi. Jafnvel þó svo að Covid-19 hafi reddast í vor er ekki sjálfgefið að svo verði aftur. Í stað þess að heilbrigðisyfirvöld kæmu sér upp varanlegri sóttvarnaraðstöðu, Covid sjúkra- og gjörgæsluaðstöðu, sem nýttist til lengri tíma litið, eru verulegar líkur á að sjúklingar þurfi enn og aftur að takast á við kunnuglega biðlista vegna Covid-sjúklinga og húsnæðisskorts. Yfirvöld þurfa að lesa með traustari hætti í ástandið á heimsvísu, hvað sé að gerast varðandi Covid-19. Núverandi ástandi hefði væntanlega mátt afstýra með fyrirhyggju og aga við opnun landamæra. Það eina góða sem getur hlotist af þessum hremmingum þjóðarinnar er að hún átti sig á hvað stjórnvöld eru óábyrg, þegar gambla skal með örlög og lýðheilsu almennings þar sem hlutirnir eiga bara að reddast. Ábyrgðarleysið var svo yfirgengilegt að hvorki sjúkra- eða gjörgæsludeild var til staðar fyrr en síðla marsmánaðar til að takast á við faraldurinn ásamt sóttvarnabúnaði þegar allt stefndi í óefni. Í flestum siðmenntuðum löndum hefðu einhverjir þurft að taka poka sinn. Flestum ætti að vera ljóst að sú uppbygging sem náðist var á kostnað annarra legurýma, og væntanlega er sama staða uppi núna. Það er íhugunarefni hvað sé til af sóttvarnabúnaði sé faraldurinn að stefna aftur í óefni ef haft er í huga það skeytingarleysi sem viðhaft var varðandi innkaup á sóttvarnabúnaði og aðstöðu fyrir sjúkra- og gjörgæslu Covid-sjúklinga. Loðin og flóttaleg svör landlæknis fyrir nokkrum dögum síðan, er hann var inntur eftir birgðahaldi, gefur fullt tilefni til að efast um að það sé í lagi. Það er illa komið fyrir þjóðinni ef heilbrigðisyfirvöld geta ekki lært af fyrri mistökum varðandi skort á pinnum og öðrum sóttvarnabúnaði. Efnahagur ferðaþjónustunnar, og þeirra sem eru að fást við tekjubrest og afleiðingar vegna Covid-19, verður ekki endurreistur með óábyrgu háttalagi. Ítrekað var varað við opnun landamæra og hvaða afleiðingar gætu hlotist af því. Þó svo mikið hafi legið við gagnvart atvinnulífinu er vandséð að réttlætanlegt sé hvernig staðið var að verki. Afraksturinn er kominn í ljós af meiri þunga en þurfti að eiga sér stað, það verður tæplega mikið að gera hjá Icelandair þennan veturinn, nema þá helst að sannfæra þjóðina um að moka tugum milljörðum í ógjaldfært félag. Samherjabaróninn ætti að geta á næstu misserum látið félög í sinni eigu ryksuga upp gjaldþrotafyrirtæki vítt og breitt um landið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun