Ellefu innanlandssmit til viðbótar Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. júlí 2020 11:08 Skimað fyrir kórónuveirunni. Vísir/vilhelm
Ellefu ný innanlandssmit kórónuveirunnar greindust síðasta sólarhringinn og eru alls 50 nú í einangrun á landinu, samkvæmt nýuppfærðum tölum á Covid.is. Þá greindust þrír með veiruna á landamærunum í gær; einn er með virkt smit, einn með mótefni og einn bíður eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu. 287 eru í sóttkví og fjölgar um 72 síðan í gær. Enn er einn á sjúkrahúsi og hefur því enginn verið lagður inn með Covid síðasta sólarhringinn, samkvæmt tölum á Covid.is. Þegar hafði verið greint frá því að fimm til tíu innanlandssmit hefðu greinst eftir hádegi í gær. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, sagði í samtali við mbl í gærkvöldi að sum þessara smita tengdust eldri smitum sem hafa komið upp. Önnur hefðu ekki þekktar tengingar við eldri smit. Hertar aðgerðir vegna bylgju nýsmita sem nú hefur komið upp taka gildi á hádegi í dag. Þar með verða fjöldamörk samkomubanns lækkuð í hundrað og tveggja metra reglunni komið aftur á. Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn vegna veirunnar klukkan 14 í dag og sýndur í beinni útsendingu hér á Vísi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira