Toppliðin unnu bæði á Ítalíu Anton Ingi Leifsson skrifar 30. júní 2020 21:50 Þessir tveir skoruðu báðir í kvöld. Annar þeirra var að skora sitt fyrsta mark síðan í janúar á síðasta ári. EPA-EFE/LUCA ZENNARO Juventus vann leik sinn gegn Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 3-1 og þar með heldur Juventus fjögurra stiga forystu sinni á toppi deildarinnar. Lazio lagði Torino 2-1 á útivelli í fyrri leik kvöldsins þökk sé mörkum Ciro Immobile og Marco Parolo. Munurinn á toppi deildarinnar því aðeins eitt stig þegar Juventus hóf sinn leik gegn Genoa. Eftir markalausan fyrri hálfleik þá gerðu leikmenn Ítalíumeistaranna svo gott sem út um leikinn á sex mínútna kafla í síðari hálfleik. Strax á 50. mínútu skoraði Paulo Dybala og sex mínútum síðar bætti Portúgalinn Cristiano Ronaldo við marki. Staðan orðin 2-0 og áttfaldir meistarar Juventus í góðum málum. Douglas Costa innsiglaði svo sigurinn með frábæru marki á 73. mínútu. Hans fyrsta mark síðan í janúar á síðasta ári. Andrea Pinamonti skoraði svo sárabótamark fyrir heimamenn í Genoa á 76. mínútu og lokatölur því 3-1. Juventus er eins og áður sagði á toppi deildarinnar með 72 stig þegar níu umferðir eru eftir. Lazio kemur þar á eftir með 68 stig. Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti