Erlent

Búast við fjölmennum mótmælum í Washington

Kjartan Kjartansson skrifar
Borgarstjórinn lét letra „Svört líf skipta máli“ á 16. stræti sem liggur að Hvíta húsinu í gær. Búist er við einum fjölmennustu mótmælum í sögu borgarinnar í dag.
Borgarstjórinn lét letra „Svört líf skipta máli“ á 16. stræti sem liggur að Hvíta húsinu í gær. Búist er við einum fjölmennustu mótmælum í sögu borgarinnar í dag. Vísir/EPA

Yfirvöld í Washington-borg búa sig undir fjölmenn mótmæli þar í dag á sama tíma og ákveðið hefur verið að afvopna þjóðvarðliða og senda hermenn heim frá borginni. Samstöðumótmæli vegna dauða óvopnaðs blökkumanns í haldi lögreglu fóru fram í Ástralíu og Asíu í dag.

Dauði George Floyd, óvopnaðs blökkumanns, í haldi lögreglunna í Minneapolis í síðustu viku hefur valdið mikilli reiði í Bandaríkjunum og víða um heim. Hann lést eftir að lögreglumaður hvíldi hné sitt á hálsinum á honum í um níu mínútur á meðan þrír aðrir lögregluþjónar stóðu hjá. Þeir hafa nú verið ákærðir fyrir morð.

Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþátthyggju hafa geisað í kjölfarið en þeim hafa sums staðar fylgt óeirðir og gripdeildir. Lögreglumenn hafa víða gerst sekir um ofbeldi og hörku gegn mótmælendunum.

Búist er við miklum mannfjölda í Washington-borg á tólfta degi mótmælanna í dag, að sögn Peters Newsham, lögreglustjórans þar. Mótmælin gætu jafnvel orðin ein þau stærstu í sögu borgarinnar. Aðgerðasinnar hafa kallað eftir milljón manna mótmælum í höfuðstaðnum.

Donald Trump forseti vakti furðu og reiði á öðrum degi hvítasunnu þegar hann hótaði að láta herinn kveða niður mótmæli og óspektir í landinu. Núverandi og fyrrverandi yfirmenn hersins hafa mótmælt þeim áformum. Washington Post segir að varnarmálaráðuneytið hafi nú ákveðið að skipa þjóðvarðliðum sem voru kallaðir út í höfuðborginni að nota ekki skotvopn eða skotfæri og að hermenn sem voru sendir að henni verði afturkallaðir.

Þrátt fyrir að Trump hafi verið harðorður í yfirlýsingum um mótmælendur hefur hann einnig lýst andstyggð á myndbandi sem sýndi dauða Floyd í haldi lögreglunnar. Í gær virtist hann þó byrjaður að draga í land með það. Þá endurtísti Trump tísti þar sem réttmæti þess að Floyd væri hampað sem „hetju“ var dregið í efa.

Mótmæltu ofbeldi í Bandaríkjunum og í heimalandinu

Þúsundir manna komu saman í borgum í Ástralíu og hundruð í Tókýó og Seúl til þess að sýna bandarísku mótmælendum samstöðu sína í dag, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Búist er við sambærilegum mótmælum víð í Evrópu.

Í Brisbane, þar sem mótmælendur voru með grímur og gættu að félagsforðum vegna kórónuveirufaraldursins, kom um 10.000 manns saman friðsamlega og héldu á lofti skiltum sem á var letrað „Svört líf skipta máli“, slagorði mótmælenda í Bandaríkjunum. Sumir vöfðu um sig fána frumbyggja og mótmæltu því sem þeir segja ofbeldi áströlsku lögreglunnar gegn þeim.

Í Tókýó beindust mótmælin meðal annars að meðferð lögreglunnar þar á kúrdískum manni sem var stöðvaður við akstur og hrint í jörðina.

„Ég vil sýna að það er kynþáttahyggja í Japan núna,“ sagði framhaldsskólanemi á mótmælunum í Tókýó við Reuters.


Tengdar fréttir

„Takið hnén á ykkur af hálsunum á okkur“

Hné lögreglumannsins á hálsi George Floyd er myndlíking fyrir þann raunveruleika sem þeldökkir Bandaríkjamenn glíma við á hverjum degi að mati séra Al Sharpton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×