Innlent

Yfir 2.500 manns kosið utan kjörfundar

Andri Eysteinsson skrifar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Smáralind
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Smáralind Vísir/Vilhelm

Yfir 2.500 manns hafa greitt atkvæði í forsetakosningunum utan kjörfundar samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu. Bergþóra Sigmundsdóttir hjá Sýslumannsembættinu segir aðsókn hafa verið meiri en undanfarnar kosningar.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 25. maí síðastliðinn hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í Smáralind. Tveir eru í framboði í kosningunum sem munu fara fram 27. Júní næstkomandi en það eru þeir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Franklín Jónsson.

Bergþóra segir að á landinu öllu hafi 147 greitt atkvæði í dag en á sama tíma fyrir síðustu kosningar höfðu alls 753 greitt atkvæði utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu.

Bergþóra segir aðsókn hafa verið jafna undanfarna daga en mögulega sé hægt að skýra mikla aðsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu til þess að líklega verði helgin 27.-28. Júní mikil ferðahelgi. Þá sé sá háttur hafður á að atkvæðagreiðslan hefur ekki farið fram á skrifstofu embættisins heldur í Smáralind.

Bergþóra segir að í fyrri kosningum hafi kjörstaður ekki verið færður úr skrifstofu embættisins fyrr en seinna í ferlinu. Aðsókn hafi aukist verulega þegar opnað er fyrir kjörstað í Perlunni.

Atkvæðagreiðslan mun í fyrstu eingöngu fara fram á 1. hæð í Smáralind frá 25. maí til og með 14. júní næstkomandi. Kjörstaðir verða opnir frá klukkan 10-19 dag hvern fyrir utan sunnudaginn 31. maí og mánudaginn 1. júní en þá verða kjörstaðir lokaðir.

Frá og með 15. júní til og með 26. júní fer atkvæðagreiðslan fram á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á 1. hæð í Smáralind, 2. hæð í Smáralind og undir stúkunni á Laugardalsvelli. Þar verður opið alla daga milli 10 og 22 nema miðvikudaginn 17. júní en þá verður lokað.

Á kjördag sjálfan, laugardaginn 27. júní verður eingöngu opið á 1. hæð í Smáralind milli klukkan 10 og 17 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.

Á landsbyggðinni fer atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Lista yfir kjörstaði má sjá á vef sýslumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×