Frumgerð SpaceX sprakk í loft upp Samúel Karl Ólason skrifar 30. maí 2020 08:26 Sprengingin var mikil og er sögð hafa skemmt starfsstöð SpaceX í Texas.
Frumgerð fyrirtækisins SpaceX af Starship geimfarinu sprakk í loft upp eftir tilraun á hreyfli geimfarsins í Texas í gær. Þetta er fjórða frumgerð Starship sem eyðileggst en vert er að ítreka að Starship kemur ekki með nokkrum hætti að geimskoti SpaceX og NASA sem á að reyna í kvöld. Engar fregnir hafa borist af mannskaða í sprengingunni. Geimfarinu Starship er ætlað að flytja menn og birgðir til tunglsins og mars í framtíðinni. Samkvæmt frétt Verge hafði þessi tiltekna frumgerð komist mun lengra í þróunarferlinu en aðrar og var þetta fimmta tilraunin með hreyfil geimfarsins á nokkrum vikum. Hefði þessi tilraun heppnast, stóð til að skjóta geimfarinu á loft en þó eingöngu í litla hæð. Elon Musk, stofnandi SpaceX, tilkynnti nýverið að hann ætlaði að leggja minni áherslu á þróun geimfarsins á næstunni og meiri áherslu á mannaðar geimferðir til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Til þeirra geimferða ætar SpaceX að notast við Falcon 9 eldflaugar og Crew Dragon geimför. Hér má sjá beina útsendingu sem stóð yfir á Youtube þar sem verið var að fylgjast með tilrauninni.
SpaceX Geimurinn Tækni Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira