Fótbolti

Eitt heitasta framherjaparið spjallar saman á svölunum í útgöngubanni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Félagarnir á góðri stundu.
Félagarnir á góðri stundu. visir/epa

Romelu Lukaku og Lautaro Martinez voru framan af vetri eitt heitasta framherjaparið í heiminum en þeir fóru algjörlega á kostum í ítalska boltanum áður en hann var settur á ís. Þeir halda þó áfram sambandinu þrátt fyrir útgöngubannið á Ítalíu.

Framherjarnir lifa nálægt hvor öðrum á Ítalíu þar sem ríkir algjört útgöngubann vegna kórónuveirunnar. Leikmenn Inter eins og aðrir íbúar landsins þurfa því að halda sig heima en Lukaku og Martinez eru heppnir að þeir búa í nágrenni við hvorn annan og geta því kallast á.

Lukaku birti í gær skemmtilegt myndband á Instagram-síðu sinni þar sem hann kallaði á félaga sinn á næstu svölum en þeir hafa samanlagt skorað 40 mörk í leikjunum sem lokið er í vetur.

Inter var í 3. sæti ítalska boltans er hann var stöðvaður vegna kórónuveirunnar og óljóst hvort eða hvenær hann fer aftur að rúlla en Martinez hefur verið reglulega orðaður burt frá Inter að undanförnu. Barelona er talið líklegur áfangastaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×