Búið að taka yfir 30.000 sýni Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2020 13:02 Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.616 hér á landi. Staðfestum smitum fjölgaði um þrjátíu frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær. Þá eru 39 nú á sjúkrahúsi og þrettán á gjörgæslu vegna COVID-19. Alls hefur 633 manns batnað af veikinni. Þá eru 4.195 manns í sóttkví og 977 í einangrun. 13.898 hafa lokið sóttkví. Sýni sem hafa verið tekin eru orðin 30.947 talsins. Sex dauðsföll hafa verið staðfest vegna kórónuveirusmits. Klukkan tvö verður haldinn upplýsingafundur almannavarna og landlæknis þar sem farið verður yfir stöðu mála í sambandi við faraldurinn og farið yfir aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, verða á staðnum til að upplýsa landsmenn um þróun mála með tilliti til kórónuveirunnar hér á landi. Gestir fundarins verða Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri útgáfu hennar var misritað hversu mörg smit bættust við á milli daga.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Drengirnir fundnir heilir á húfi Sjá meira