Hlýja og væntumþykja splundrast um allt Pure Deli 8. apríl 2020 10:40 Jón Guðbrandsson eigandi Pure Deli finnur fyrir mikilli samhygð og væntumþykju í samfélaginu. Hann hefur ekki undan að útbúa girnilega brönsbakka fyrir fólk sem vill gleðja ástvini eða gera sér dagamun heima með fjölskyldunni. „Ég held að á endanum muni margt gott koma út úr þessu ástandi sem við erum að upplifa í dag, fólk sýnir svo mikla væntumþykju og samkennd með öðrum. Við vorum kannski bara búin að gleyma út á hvað lífið gengur í raun og létum stjórnast af hraðanum í samfélaginu,“ segir Jón Guðbrandsson, eigandi Pure Deli, en hann hefur ekki undan við að útbúa brönsbakka eftir pöntunum og sendast með í heimahús fyrir fólk sem vill gleðja ástvini sína. Svakalega girnilegir brönsbakkar til að fá senda heim. „Þetta byrjaði allt fyrir um það bil viku þegar góðhjörtuð amma hafði samband við okkur og vildi senda bröns heim til barnanna sinna. Við útbjuggum girnilegan take-away bakka fyrir þau og skutluðumst með hann heim að dyrum. Sagan spurðist út og í kjölfarið rigndi yfir okkur pöntunum frá fólki sem vildi gleðja vini og vandamenn sem voru bundnir heima,“ segir Jón. „Fólk pantar líka fyrir sig sjálft og fjölskylduna til að gera sér glaðan dag heima. Þetta er alveg magnað. Mér finnst þetta bara svo fallegt og gaman að fá að taka þátt í að gleðja fólk. Ofan í allar slæmu fréttirnar sem við heyrum núna þá erum við líka að upplifa jákvæða hluti,“ segir Jón. Sjálfur finni hann mun á fólki sem hann mætir á förnum vegi. „Ég hef farið út að ganga með hundinn sama hringinn í mörg ár og aldrei heilsar neinn sem maður mætir en í dag eru bókstaflega allir úti að labba og það heilsar hver einasti maður sem ég mæti á göngunni. Ég held að fólk sé að breytast. Allt í einu er öll fjölskyldan alltaf saman og hlýja og væntumþykja splundrast út um allt. Þetta á eftir að leiða okkur á rétta braut.“ Veganbröns. Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni. Hægt er að sækja á staðinn eða fá sent heim. Ef þess er óskað verður pöntunin skilin eftir fyrir utan. Opið verður hjá Pure Deli á skírdag og annan í páskum. Matur Samkomubann á Íslandi Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Menning Fleiri fréttir Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
„Ég held að á endanum muni margt gott koma út úr þessu ástandi sem við erum að upplifa í dag, fólk sýnir svo mikla væntumþykju og samkennd með öðrum. Við vorum kannski bara búin að gleyma út á hvað lífið gengur í raun og létum stjórnast af hraðanum í samfélaginu,“ segir Jón Guðbrandsson, eigandi Pure Deli, en hann hefur ekki undan við að útbúa brönsbakka eftir pöntunum og sendast með í heimahús fyrir fólk sem vill gleðja ástvini sína. Svakalega girnilegir brönsbakkar til að fá senda heim. „Þetta byrjaði allt fyrir um það bil viku þegar góðhjörtuð amma hafði samband við okkur og vildi senda bröns heim til barnanna sinna. Við útbjuggum girnilegan take-away bakka fyrir þau og skutluðumst með hann heim að dyrum. Sagan spurðist út og í kjölfarið rigndi yfir okkur pöntunum frá fólki sem vildi gleðja vini og vandamenn sem voru bundnir heima,“ segir Jón. „Fólk pantar líka fyrir sig sjálft og fjölskylduna til að gera sér glaðan dag heima. Þetta er alveg magnað. Mér finnst þetta bara svo fallegt og gaman að fá að taka þátt í að gleðja fólk. Ofan í allar slæmu fréttirnar sem við heyrum núna þá erum við líka að upplifa jákvæða hluti,“ segir Jón. Sjálfur finni hann mun á fólki sem hann mætir á förnum vegi. „Ég hef farið út að ganga með hundinn sama hringinn í mörg ár og aldrei heilsar neinn sem maður mætir en í dag eru bókstaflega allir úti að labba og það heilsar hver einasti maður sem ég mæti á göngunni. Ég held að fólk sé að breytast. Allt í einu er öll fjölskyldan alltaf saman og hlýja og væntumþykja splundrast út um allt. Þetta á eftir að leiða okkur á rétta braut.“ Veganbröns. Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni. Hægt er að sækja á staðinn eða fá sent heim. Ef þess er óskað verður pöntunin skilin eftir fyrir utan. Opið verður hjá Pure Deli á skírdag og annan í páskum.
Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni. Hægt er að sækja á staðinn eða fá sent heim. Ef þess er óskað verður pöntunin skilin eftir fyrir utan. Opið verður hjá Pure Deli á skírdag og annan í páskum.
Matur Samkomubann á Íslandi Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Menning Fleiri fréttir Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira