Erlent

Vill að Danmörk opni hraðar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lars Løkke Rasmussen hefur tvívegis gegnt embætti forsætisráðherra Danmerkur.
Lars Løkke Rasmussen hefur tvívegis gegnt embætti forsætisráðherra Danmerkur. vísir/epa

Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, er ósáttur við það hvernig eftirmenn hans í ríkisstjórn landsins ætla sér að aflétta takmörkunum í landinu vegna kórónuveirunnar. Hann segir þau ekki leggja næga áherslu á hagkerfið og peningahliðina, nauðsynlegt sé að koma þjónustuiðnaðinum fyrr af stað en núverandi áætlanir geri ráð fyrir.

„Ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig forsætisráðherrann [Mette Fredriksen] hélt á málum við upphaf faraldursins, ég hef hrósað henni nokkrum sinnum fyrir það. Hins vegar hef ég nokkrar áhyggjur af því hvernig staðið er að hlutunum í dag og mér finnst sem ég beri siðferðislega skyldu til að benda á það,“ segir Rasmussen í viðtali við TV2 í Danmörku.

Ríkisstjórn Mette Fredriksen kynnti í gær hvernig hún hyggst vinda ofan af hinum ýmsu takmörkunum sem hafa verið í gildi í Danmörku vegna veirunnar. Þannig taka hin ýmsu skólastig aftur til starfa eftir páska auk þess sem fólk má aftur mæta í vinnunna ef rétt er staðið að því. Hins vegar verður áframhaldandi bann við fjöldasamkomum og hinum ýmsu stöðum gert að vera lokaðir áfram; eins og veitingastöðum, knæpum, hárgreiðslustofum og svo framvegis.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.Epa/Martin Sylvest

Rasmussen segist ekki síst vera ósáttur með þessa áframhaldandi lokun. Þjónustugeirinn hafi þegar orðið fyrir miklu áfalli og að hann megi varla við meiru, hvað þá að vera lokaður áfram í mánuð eins og núverandi áætlanir fela í sér. Of lítil áhersla hafi verið lögð á peningahliðina þegar ákveðið var að opna Danmörku aftur að mati Rasmussen sem segir að Danir gætu átt yfir höfði sér „fjármálalegt áfall“ ef ekki verður gripið í taumana.

Hann segir að vitaskuld þurfi heilbrigðishluti faraldursins þó að vera í forgrunni. Álagið á heilbrigðiskerfið sé hins vegar undir þolmörkum, sé í raun minna en það hafi verið áður og nefnir Rasmussen svæsna flensu sem hrellti Dani fyrir nokkrum árum. Í því ljósi sé svigrúm til þess að flýta opnun Danmerkur og koma þannig í veg fyrir fyrrnefndan fjármálaskell.

Rasmussen segir Dani nógu þroskaða og skynsama til að fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda og þannig tryggja að opnunin gangi vel fyrir sig. Viðtalið við hann má nálgast í heild sinni með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Danir kynna enn harðari aðgerðir

Samkomur fleiri en tíu manneskja verða bannaðar og veitingastaðir, hárgreiðslustofur, sólbaðsstofur og íþróttamiðstöðvar þurfa að loka samkvæmt nýjum aðgerðum til að hefta útbreiðslu kórónveirunnar sem Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tilkynnti um í kvöld.

Danadrottning: Kórónuveiran er vágestur

Margrét Þórhildur Danadrottning hvatti landa sína til þess að taka aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins alvarlega í sögulegu sjónvarpsávarpi í kvöld.

Danir framlengja samkomubann fram yfir páska

Forsætisráðherra Danmerkur tilkynnti nú síðdegis að samkomubannið þar í landi verði framlengt fram á annan dag páska, 13. apríl. Til skoðunar er að koma á svæðisbundnu ferðabanni yfir páskana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×