Lukaku heitur er Inter jafnaði Juventus

Anton Ingi Leifsson skrifar
Romelu Lukaku, framherji Inter.
Romelu Lukaku, framherji Inter. vísir/getty

Inter jafnaði topplið Juventus að stigum er liðið vann 4-0 sigur á Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Romelu Lukaku kom Inter yfir á 30. mínútu og mínútu síðar var staðan orðinn 2-0 er Roberto Gagliardini skoraði. Hálfleikstölur 2-0.

Sebastiano Esposito skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu á 64. mínútu og Lukaku skoraði annað mark sitt og fjórða mark Inter á 71. mínútu. Lokatölur 4-0.







Juventus og Inter eru bæði með sautján stig á toppi deildarinna en Genoa er í 19. sætinu, fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira