Mikil eyðilegging eftir Phanfone Sylvía Hall skrifar 26. desember 2019 10:17 Talið er að um hundrað fjölskyldur hafi misst heimili sín. Vísir/EPA
Fjöldi fólks er látið og hundrað fjölskyldur hafa misst heimili sín eftir að fellibylurinn Phanfone gekk yfir Filippseyjar. Fellibylurinn náði landi á þriðjudagskvöld en gekk yfir miðbik Filippseyja yfir jóladag. Vindhviður byljarins náðu tæplega 53 metrum á sekúndu. Mikið tjón hefur orðið á eyjunum og þá sérstaklega nærri svæðum sem urðu hvað verst úti þegar fellibylurinn Haiyan gekk yfir í nóvember árið 2013 með þeim afleiðingum sex þúsund manns létust. Haiyan varð þá mannskæðasti stormur sem landsins frá upphafi en vindhraðinn náði þá rúmlega 86 metrum á sekúndu. Á vef BBC er haft eftir staðarmiðlum að í það minnsta tíu séu látnir, þar á meðal þriggja ára drengur. AFP greinir frá því að í það minnsta sextán séu látnir. Flest dauðsföllin hafa orðið í Iloilo og Capiz. Staðir á ferðamannaeyjunni Boracay virðast einnig hafa orðið fyrir tjóni þó ekki liggi fyrir hversu umfangsmikið það sé. Samkvæmt formanni Rauða krossins í Filippseyjum gæti tekið einhverjar vikur að ná aftur rafmagni og hreinu vatni á svæðum sem hafa orðið hvað verst úti. Þá sé fjöldi fólks búið að missa heimili sín og þurfi að verða sér úti um mat.
Filippseyjar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira