Flutningur fjögurra hrúta tilkynntur til lögreglu Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. desember 2019 10:59 Í tilkynningu segir að meintur flutningur hrútanna hafi uppgötvast við eftirlit. Mynd er úr safni. Vísir/vilhelm
Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi fjögurra lambhrúta frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Matvælastofnunar. Óheimilt er að flytja sauðfé yfir varnarlínur nema í sérstökum undantekningartilfellum að fengnu leyfi stofnunarinnar. Í tilkynningu segir að meintur flutningur hrútanna hafi uppgötvast við eftirlit. Flutningsbann var í kjölfarið sett á skepnurnar. Viðtakandi hrútanna er sagður hafa sótt um leyfi til Matvælastofnunar um kaup á fimm lambhrútum úr Vestfjarðahólfi vestra árið 2016. Þeirri umsókn hafi verið hafnað. Þá er sérstaklega tekið fram í tilkynningu að tilgangur dýrasjúkdómalaga sé m.a. að hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma og vinna að útrýmingu þeirra. „Samkvæmt þeim lögum ákveður ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, hvaða varnarlínum skuli haldið við. Varnarlínur eru ákveðnar til að verja eftir föngum bústofn bænda fyrir dýrasjúkdómum.“
Dýr Dýraheilbrigði Landbúnaður Lögreglumál Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Skárri staða í Álasundi Innlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Fleiri fréttir Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Hættustigi aflýst og rýmingu aflétt á Ísafirði Skárri staða í Álasundi Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut Sjá meira