Kvikmyndin End of Sentence, í leikstjórn Elfars Aðalsteins, fékk á dögunum sérstök dómnefndarverðlaun (Special Jury Awards) á 68. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Mannheim-Heidelberg í Þýskalandi.
Hátíðin er ein elsta og stærsta kvikmyndahátíð Þýskalands en um fimmtíu þúsund gestir sækja hana árlega heim.
Kvikmyndin hefur undanfarna mánuði verið sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðunum í Edinborg, Tókýó, Tallinn og Stokkhólmi ásamt því að vera opnunarmynd RIFF nú í haust.
