R. Kelly ákærður fyrir mútur vegna hjónabandsins við Aaliyah Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. desember 2019 08:22 Mynd sem tekin var af Kelly þegar hann var færður í varðhald af lögreglunni í Chicago fyrr á árinu. Chicago Police Dept./AP
Tónlistarmaðurinn R. Kelly hefur verið ákærður fyrir að bera mútur á opinberan embættismann í tengslum við það þegar hann giftist söngkonunni Aaliyah árið 1994. Hún var þá undir lögaldri og á R. Kelly að hafa mútað embættismanninum til þess að gefa út fölsk skilríki handa Aaliyah. R. Kelly var 27 ára á þessum tíma og Aaliyah 15 en fölsuðu skilríkin sýndu að Aaliyah væri 18 ára. Þau voru svo notuð til þess að sækja um leyfi til hjónabands hjá þar til bærum yfirvöldum. Sjá einnig: „Kærustur“ R. Kelly koma honum til varnar og skella skuldinni á foreldra sína Samkvæmt málsgögnum borgaði R. Kelly embættismanninum mútur þann 30. ágúst 19994, aðeins degi áður en hann giftist Aaliyah. Nokkrum mánuðum síðar var hjónabandið síðan ógilt vegna þess að söngkonan var undir lögaldri. Aaliayah lést í flugslysi árið 2001. R. Kelly framleiddi og samdi lögin á fyrstu plötu hennar., Age Ain‘t Nothing But a Number. Nokkrar ákærur hafa verið gefnar út á hendur R. Kelly fyrir kynferðisbrot og bíða mál meðferðar dómstóla bæði í Chicago og New York. R. Kelly hefur neitað því með öllu að hafa brotið af sér.
Bandaríkin MeToo Mál R. Kelly Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Sjá meira