Fótboltamaður grunaður um að vera höfuðpaur eiturlyfjahrings Kristinn Haukur Guðnason skrifar 21. nóvember 2019 06:00 Contreras í leik Aris gegn AEK árið 2009. Nordicphotos/Getty
Sergio Contreas, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, var handtekinn á þriðjudag, grunaður um að vera höfuðpaur eiturlyfjahrings sem starfar á suðurhluta Spánar. Contreras var á ferli sínum þekktur sem Koke, en þó ekki hinn þekkti landsliðsmaður Koke sem spilar með Atletico Madrid. Handtakan fór fram í bænum Estepona, sem er mitt á milli Gíbraltarhöfða og hins vinsæla ferðamannastaðar Marbella. Á sama tíma fóru fram lögregluaðgerðir víðs vegar um suðurhluta Spánar, svo sem í borgunum Sevilla, Malaga og Granada. Í aðgerðunum voru alls 20 manns handteknir, hald lagt á eitt tonn af kannabisefnum og 700 þúsund evrur í peningum, eða rúmlega 95 milljónir króna. Samkvæmt lögreglunni er Contreras grunaður um að vera leiðtogi hópsins og að skipuleggja starfsemina. Er honum nú haldið í gæsluvarðhaldi í borginni Malaga. Contreras er 36 ára gamall og lék fótbolta frá 2001 til 2016 sem framherji. Hann hóf ferilinn í heimabæ sínum Malaga en fór ungur til franska liðsins Marseille þar sem hann skoraði 6 mörk í 43 leikjum. Eftir stutt lán til Sporting Lissabon spilaði Contreras í fimm ár með gríska liðinu Aris. Eftir það varð hann hálfgerður flækingur og spilaði meðal annars með Houston Dynamo í Bandaríkjunum, FC Baku í Aserbaídjsan, Blooming í Bólivíu og NorthEast United á Indlandi.
Birtist í Fréttablaðinu Spánn Spænski boltinn Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira