Þrettán franskir hermenn fórust í þyrluslysi í aðgerð hersins gegn íslömskum öfgamönnum í Malí í gærkvöldi. Frá þessu greinir skrifstofa Frakklandsforseta.
Í yfirlýsingu frá Emmanuel Macron forseta segist hann „mjög hryggur“ vegna atviksins og sendir hann aðstandendum hinna látnu samúðarkveðjur.
Óöld hefur ríkt í norðurhluta Malí frá árinu 2012 þegar íslamskir uppreisnarmenn náðu tökum á stóru landsvæði þar. Malíski herinn hefur þó með aðstoð franska hersins tekist að ná landsvæðinu á sitt vald á ný.
Óstöðugleiki í landinu er þó enn mikill þar sem átök hafa breiðst út til annarra landsvæða.
Þrettán franskir hermenn fórust í þyrluslysi

Tengdar fréttir

Vígamenn mala gull í Afríku
Al-Qaeda, Íslamska ríkið og önnur hryðjuverkasamtök hafa að undanförnu dreift úr sér í Afríku. Sameinuðu þjóðirnar og aðrir sérfræðingar hafa sérstaklega varað við því að hryðjuverkasamtök nái stjórn á gullnámum á Sahel-svæðinu.