Snorri Steinn: Breytum byrjuninni ekki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. nóvember 2019 21:51 Strákarnir hans Snorra eru komnir á sigurbraut. vísir/daníel „
Eins og oft áður var vörnin þétt og markverðirnir voru báðir mjög góðir í leiknum. Við byrjuðum vel en ég var óánægður með kafla í fyrri hálfleik þar sem við hleyptum þeim inn í leikinn. Þeir gerðu það vel og við vorum í smá vandræðum í sókninni,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, í samtali við Vísi eftir sigurinn á KA, 31-23, í kvöld. „Svo var meiri kraftur og áræðni í sóknarleiknum í seinni hálfleik. Þeir spila ákveðna 3-2-1 vörn sem getur slegið lið út af laginu.“ KA-menn héldu lengi vel í pilsfaldi Valsmanna. Munurinn var tvö mörk í hálfleik, 13-11, en í seinni hálfleik var Valur alltaf með frumkvæðið og vann að lokum átta marka sigur. „KA er með flott lið og þeir berjast hrikalega vel. Þeir eru fastir fyrir en við mættum þeim í baráttunni. Þeir skoruðu lítið, voru í brasi í sókninni og reyndu alls konar hluti en mér fannst við leysa það vel,“ sagði Snorri. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Valur nú unnið fjóra leiki í röð. „Þegar við vorum í krísunni sagði ég að eina meðalið væri að vinna leiki,“ sagði Snorri. „Það gerir öllum liðum gott. Við þurftum nauðsynlega á því að halda og erum búnir að vinna fjóra leiki í röð. En við förum ekki fram úr okkur. Byrjunin er alveg eins og hún var. Við breytum henni ekkert.“
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 31-23 | Fjórði sigur Valsmanna í röð Valur vann sinn fjórða leik í röð þegar KA kom í heimsókn á Hlíðarenda. 13. nóvember 2019 21:45 Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 31-23 | Fjórði sigur Valsmanna í röð Valur vann sinn fjórða leik í röð þegar KA kom í heimsókn á Hlíðarenda. 13. nóvember 2019 21:45