Meðal þeirra var David Petraeus, fyrrverandi hershöfðingi og fyrrverandi yfirmaður CIA. Hann stýrði um tíma öllum herafla Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Hann sagði Trump hafa svikið langvarandi bandamenn í baráttunni við ISIS, sem hafi misst rúmlega tíu þúsund menn í þeirri baráttu.
Vísaði hann til viðræðna sinna við Kúrda í Írak á árum áður. „…þeir sögðu: „Veistu hvað hershöfðingi. Einu vinir Kúrda eru fjöllin“. Ég sagði: „Nei, þið hafið Bandaríkin“.“
Þá gagnrýndi Petraeus forsetann fyrir að halda því fram að hann væri að binda enda á „endalaust stríð“. Í rauninni myndi ákvörðun Trump lengja stríðið og þá sérstaklega með tilliti til þess að vígamenn Íslamska ríkisins fengu nú færi á því að athafna sig að nýju. Þeir gætu byggt samtök sín upp aftur.
Hér má sjá samantekt Washington Post á þeim sem gagnrýndu Trump í fréttaþáttum í dag.
Sjá einnig: Bandarískar hersveitir fara frá Sýrlandi til vesturhluta Írak
Þetta sagði Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, þar sem hann er staddur í Afganistan. Hann útilokaði ekki að hermennirnir myndu ráðast gegn ISIS í Sýrlandi frá Írak. Hann sagðist þar að auki ætla að ræða við bandamenn Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins á næstu vikum og þú um framtíð baráttunnar gegn ISIS.
Þar að auki viðurkenndi Esper, samkvæmt AP fréttaveitunni, að til einhverra bardaga hefði komið á milli sýrlenskra Kúrda annars vegar og Tyrkja og sýrlenskra uppreisnarhópa sem þeir styðja hins vegar. Þrátt fyrir það héldi vopnahléið að mestu leyti.
Uppreisnarmenn þessir, sem margir eru sagðir tengjast al-Qaeda og ISIS, hafa verið sakaðir um stríðsglæpi í innrás Tyrkja.
Sjá einnig: Hatur á Kúrdum, þjóðremba og þrá til að auðgast
Trump birti í dag tíst þar sem hann kallaði Esper, Esperanto, væntanlega fyrir mistök, og hafði eftir honum að vopnahléið héldi og einungis smáir bardagar hefðu átt sér stað. Þá hafði hann sömuleiðis eftir Esper að verið væri að flytja Kúrdana um set, búið væri að tryggja olíuna og hermennirnir væru á leið heim.
Enginn getur eða vill útskýra
Margt af þessu er kolrangt og hitt er óskiljanlegt, eins og bent er á í frétt New York Times. Starfsmenn Trump hafa til dæmis ekki getað útskýrt fyrir blaðamönnum ytra hvað forsetinn á við þegar hann sagði Esper hafa sagt að búið væri að tryggja olíuna. Trump sjálfur hunsaði spurninguna þegar hann var spurður út í það í dag.Hann hélt þessu einnig fram á föstudaginn.
Nokkrum klukkustundum síðar var tístinu eytt og það birt aftur. Þá var nafn Esper rétt og var búið að taka út þann hluta ummælanna sem Trump eignaði Esper og fjallaði um að hermennirnir væru á leið heim.
“The ceasefire is holding up very nicely. There are some minor skirmishes that have ended quickly. New areas being resettled with Kurds. U.S. soldiers are not in combat or ceasefire zone. We have secured the Oil.” Mark Esper, Secretary of Defense. Ending endless wars!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 20, 2019
„Að ýta undir þjóðarmorðið sem á sér nú stað er mesta móðgunin gagnvart okkar fólki hingað til. Með allri virðingu, herra forseti, hvað veldur því að þú telur þig eiga rétt á því að flytja milljónir Kúrda frá heimilum þeirra? Er það ekki þjóðernishreinsun?“ sagði Bali.
Encouraging the ongoing genocide campaign is by far the greatest insult to our people so far. With all due respect, Mr. President, what makes you think you have the right to drive millions of Kurds out of their homes and resettle them elsewhere? Isn’t this ethnic cleansing? https://t.co/FZ45jRcqie
— Mustafa Bali (@mustefabali) October 20, 2019
Tyrkir segjast vilja stofna öryggissvæði sem nái um 30 kílómetra inn í Sýrland frá landamærum ríkjanna. Þar standi til að koma einhverjum af þeim um 3,6 milljónum sýrlenskra flóttamanna sem halda til í Tyrklandi.
Þó hefur Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, gefið í skyn að hann vilji stjórna mun stærri hluta af Sýrlandi. BBC vísar í orð forsetans í dag þar sem hann krafðist þess að Kúrdar yfirgæfu svæðið fyrir þriðjudagskvöld. Annars muni Tyrkir „halda áfram að kremja höfuð hryðjuverkamanna“, eins og hann orðaði það.