Sterkur fellibylur stefnir að Japan Kjartan Kjartansson skrifar 9. október 2019 16:43 Gervihnattamynd NASA af Hagibis yfir Norður-Maríönnueyjum í Kyrrahafi í gær. Vísir/EPA
Fellibylurinn Hagibis í vestanverður Kyrrahafi stefnir nú að Honshu-eyju Japans. Hann náði aftur stærðinni fimm eftir að hann veiktist lítillega í gær. Möguleiki er á að bylurinn fari beint yfir höfuðborgina Tókýó um helgina. Veðurfræðingar búast við því að Hagibis veikist þegar hann færist norður og norðaustur á bóginn. Útlit er fyrir að stormurinn fari nærri eða gangi á land á Honshu-eyju, stærstu og fjölmennustu eyju Japans. Veruleg óvissa er enn í spám en mögulegt er að fellibylurinn fari yfir Tókýó á laugardag, að sögn Washington Post. Þá gæti hann hafa veikst niður í fellibyl af stærðinni tveir. Eins og stendur er fellibylurinn sagður óvenjustór. Auga hans er 56 kílómetrar að þvermáli. Mesti viðvarandi vindhraði var um 72 metrar á sekúndu í morgun. Þrátt fyrir að stormurinn veikist er talið að hvassviðrið sem fylgir honum verði víðfeðmara með hættu á sjávarflóðum, úrhellisrigningu og flóðum, aurskriðum og ofsaveðri á landi gangi hann nærri Honshu eða á land þar.
Japan Veður Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Fleiri fréttir Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán