Markmiðið að safna einum milljarði króna og líta vel út á meðan Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. september 2019 21:30 Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, er á meðal þeirra sem tóku þátt í hópreiðinni í fyrra. Baldur Kristjánsson
Um 130 þúsund manns á mótorhjólum hafa skráð sig til leiks í The Distinguished Gentleman‘s Ride sem fram fer á sunnudaginn. Um er að ræða áheitahópreið klassískra mótorhjóla og vel klædds mótorhjólafólks. Ekið er til stuðnings rannsóknum á blöðruhálskrabbameini og baráttunnar gegn sjálfsvígum og njóta Mowember-samtökin góðs af. Allir fjármunir sem safnast renna beint til þeirra. Þetta er í annað sinn sem hópreiðin er í Reykjavík. Samtímis verður ekið á klassískum mótorhjólum um allan heim og eru yfir 130 þúsund þátttakendur skráðir á yfir 700 stöðum víðsvegar um heiminn en enn er opið fyrir skráningu. Markmiðið er að safna sjö milljón dollrum, um einum milljarði króna, til góðra málefna og líta vel út á meðan, að því er fram kemur í tilkynningu frá Herramönnum á hjólum. Daði Einarsson, sem þekktur er fyrir tæknibrellur sínar í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, er meðal þeirra sem eru í forsvari fyrir herramennina.Rúmlega hundrað þátttakendur tóku þátt í Reykjavík í fyrra á mörgum af flottustu mótorhjólum sem sjást á götum borgarinnar. Staðsetning verður ekki gefin upp fyrr en skráningu er lokið og búið að styrkja málefnið. Skráning fer fram hér. „Eina sem þarf að gera er að skrá sig, byrja að safna áheitum af krafti, grafa upp sitt fínasta púss og bóna mótorhjólið. Njóta þess svo að hjóla í haustblíðunni og vita að góð og nauðsynleg málefni njóta góðs af,“ segir í tilkynningu. Ljósmyndararnir Árni Sæberg og Baldur Kristjánsson mynduðu þátttakendur í hópreiðinni í fyrra.Hópreiðin kom við á Kaffibarnum í fyrra þar sem Bartónar sungu.Árni SæbergFerfætlingar fengu að sitja í.Árni SæbergAllir mættu í sínu fínasta pússi í fyrra.Baldur KristjánssonYfir hundrað manns tóku þátt í fyrra hér á landi.Baldur KristjánssonMótorhjólin voru alls kyns en flest stórglæsileg.Baldur Kristjánsson
Reykjavík Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Sjá meira