Man vel eftir McAfee en þó ekki John Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. september 2019 10:55 Hjónin hafa rekið veitingastaðinn frá árinu 2012. Gregorz
Gregorz Tomasz Maniakowski vaknaði við símtal í morgun og spurður út í fregnir af milljarðarmæringnum John McAfee sem virðist mögulega hafa farið huldu höfði á Dalvík í sumar. Ekki nóg með það heldur sagðist vírusvarnafrömuðurinn sérstaklega eiga eftir að sakna veitingastaðsins Gregors sem Gregorz rekur ásamt konu sinni. „Ég veit ekki hvenær hann kom, ef hann kom. Ef ég spjallaði við hann þá er ég búinn að gleyma því,“ segir Gregorz í samtali við Vísi. Hann segir marga sækja heim veitingastaðinn sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni á Dalvík og hefur gert síðan árið 2012. „Það eru margir sem koma og vilja spjalla. En ég man ekki eftir því að neinn hafi sagst heita John eða svoleiðis.“ Hann útskýrir fyrir blaðamanni Vísis að blaðamaður annars miðils hafi hringt í morgun og vakið hann. Gregorz hafi komið af fjöllum, opnað tölvu sína og við hafi blasað fregnir af McAfee og veitingastaðnum. Sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð segist ekki hafa séð McAfee í sumar og hafi hún þó verið heima í allt sumar og sjái umrætt hús út um gluggann á bæjarskrifstofunni. Engin staðfesting hefur fengist á veru McAfee á Dalvík en hann segist sjálfur hafa verið hér á landi og ber veitingastaðnum vel söguna.We have been outed. You cannot blame Adam. It would have happened eventually. The slip up was mine - mentioning Gregor's Eatery. I, in fact, commend Adam for his intelligence and insightful work. If I had money, I would hire you Adam. We are on the road again. https://t.co/zvzMj5RyiH— John McAfee (@officialmcafee) August 28, 2019 Milljarðamæringur á flótta Tæknifrumkvöðullinn John McAfee, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað McAfee vírusvarnarfyrirtækið, hefur verið á flótta frá 2012 þegar hann var sakaður um að hafa skotið nágranna sinn í Belís til bana. Hann er einnig sakaður um umfangsmikil skattsvik í Bandaríkjunum. McAfee hvarf af sjónarsviðinu í sumar eftir að hann var handtekinn í Dóminíska lýðveldinu. Þá var hann ásamt öðrum á ferð í snekkju og fundust þar um borð skotvopn, skotfæri og „hergögn“. Eftir að honum var sleppt sagði McAfee á Twitter að hann ætlaði sér að fara huldu höfði um tíma og sagðist hann vera í Litháen. Nú á dögunum kom þó í ljós að McAfee hafi þurft að flytja á nýjan leik og sagði hann á Twitter að það væri vegna þess komið hafi verið upp um felustað hans og eiginkonu hans.McAfee hvarf af sjónarsviðinu í sumar eftir að hann var handtekinn í Dóminíska lýðveldinu.Getty/Larry MaranoAuglýsa aldrei Gregorz hefur verið búsettur hér á landi í 24 ár og talar prýðilega íslensku. Aðspurður hvað sé best við veitingastað þeirra hjóna segir það ekki hans að lofsyngja eigin stað. Aðrir verði að tjá sig um hann. „Ég hugsa samt að þetta sé góður staður. Við auglýsum aldrei en fólk kemur alltaf og vill spjalla. Ég vil vera góður vinur,“ segir Gregorz. Þau konan standi vaktina og stundum taki dóttir þeirra til hendinni. „Þetta er lítill staður með lítinn en góðan matseðil, í rólegum bæ. Fyrir utan á Fiskidaginn.“McAfee í gömlu Windows tölvunni Adam nokkur Guerbuez virðist hafa komið upp um John McAfee á Twitter þann 26. ágúst. Hann fullyrðir að McAfee hafi haldið til í íbúð á efri hæð hússins. Gregorz þekkir ekki til þess. „Ég er ekki eigandi hússins, það er annað fólk sem á húsið,“ segir Gregorz. Eftir því sem hann viti best séu íbúðirnar í langtímaleigu, ekkert Airbnb eða þess háttar. Tvær fjölskyldur búi í íbúðunum og hafi gert í nokkurn tíma. Hann rifjar upp kynni sín af McAfee fyrir mörgum árum. „Í gamla daga opnaði maður Windows tölvuna sína og þá kom upp antívírus McAfee,“ segir Gregorz og hlær..@theemrsmcafee and I have moved. We moved because some a*hole publicly outed our location. Janice and I have settled in to a new safe house in a new country. Weather still sucks but at least our Comm room is fully mobile and will arrive soon. We will miss Gregor's.— John McAfee (@officialmcafee) August 28, 2019 Ef marka má orð McAfee á Twitter eru hann og fjölskylda hans á bak og burt frá Dalvík. Í fyrstu bölvaði hann Adam Guerbuez fyrir að hafa komið upp um þau en dró svo í land. Til þeirra hefði spurst fyrr en síðar. Það hafi verið hans mistök að lofsyngja Gregors veitingastaðinn.Katrín Sigurjónsdóttir er sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar.Sveitastjóri kemur af fjöllum Svo því sé haldið rækilega til haga hefur ekki fengist staðfesting á því hvort McAfee hafi haldið til hér á landi eða ekki. Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, kom sömuleiðis af fjöllum þegar blaðamaður heyrði í henni hljóðið um ellefuleytið. Katrín hafði hvorki séð fréttir né kannaðist hún við andlitið á McAfee. „Ég hef verið heima í allt sumar en ég hef ekki séð þennan mann,“ segir Katrín. Hún þekkir vel til fólksins sem á umrætt hús og viti vel hverjir leigi íbúðirnar tvær á efri hæðinni. Einhverjar framkvæmdir hafi verið í risinu en hún hafi ekki orðið vör við fyrrnefndan McAfee. „En það er gaman fyrir Dalvíkinga að komast í fréttirnar,“ segir Katrín og hlær.Fréttin var uppfærð með viðbrögðum sveitarstjóra.
Dalvíkurbyggð Íslandsvinir Tengdar fréttir Vírusakóngur vill í Hvíta húsið Vírusvarnafrömuðurinn John McAfee tilkynnti í gær um framboð sitt fyrir hönd nýstofnaðs flokks síns, Netflokksins, til forseta Bandaríkjanna. McAfee fann upp fyrsta vírusvarnaforritið. 25. september 2015 09:00 John McAfee fluttur á sjúkrahús Auðkýfingurinn og hugbúnaðarfrumkvöðullinn John McAfee var fluttur á sjúkrahús í Guatemala í dag. McAfee, sem var eftirlýstur af Interpol vegna morðs í Belís, sótti um pólitísk hæli í Guatemala á dögunum. 7. desember 2012 13:07 John McAfee virðist hafa falið sig á Dalvík Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið á flótta frá 2012. 6. september 2019 07:48 Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Sjá meira
Vírusakóngur vill í Hvíta húsið Vírusvarnafrömuðurinn John McAfee tilkynnti í gær um framboð sitt fyrir hönd nýstofnaðs flokks síns, Netflokksins, til forseta Bandaríkjanna. McAfee fann upp fyrsta vírusvarnaforritið. 25. september 2015 09:00
John McAfee fluttur á sjúkrahús Auðkýfingurinn og hugbúnaðarfrumkvöðullinn John McAfee var fluttur á sjúkrahús í Guatemala í dag. McAfee, sem var eftirlýstur af Interpol vegna morðs í Belís, sótti um pólitísk hæli í Guatemala á dögunum. 7. desember 2012 13:07
John McAfee virðist hafa falið sig á Dalvík Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið á flótta frá 2012. 6. september 2019 07:48