R. Kelly fundar með lögmanninum sem varði Michael Jackson og Bill Cosby Vésteinn Örn Pétursson skrifar 14. ágúst 2019 16:45 Tom Mesereau hefur varið mörg frægðarmennin í gegn um tíðina. Vísir/Getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn R. Kelly, sem sakaður er um stórfellda kynferðisglæpi yfir nokkurra ára tímabil, hefur fundað með lögmanninum Tom Mesereau. Lögmaðurinn er þekktur verjandi í Bandaríkjunum og hvað þekktastur fyrir að hafa varið Michael Jackson þegar popptónlistarmaðurinn var ákærður fyrir kynferðislega misnotkun á börnum, og unnið málið. Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá þessu og segir jafnframt að Kelly hyggi á breytingar á lögfræðiteymi sínu. Vonist hann til að Mesereau verði aðallögfræðingur hans. Auk þess að hafa varið Jackson árið 2005 þá varði hann einnig leikarann Robert Blake, sama ár, þegar leikarinn var sakaður um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana. Það mál fór Mesereau og skjólstæðingi hans einnig í vil. Eins var Mesereau verjandi Bill Cosby. Þá hefur spurningu um hvernig Kelly ætlar sér að borga lögfræðikostnað sinn verið velt upp. Eins og gefur að skilja kostar það væna summu að fá til liðs við sig þekktan stjörnulögfræðing, en fréttir af fjárhagskröggum Kelly hafa verið áberandi að undanförnu. Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að Kelly hefði ekki efni á meðlagsgreiðslum til fyrrverandi eiginkonu sinnar, Dreu Kelly. Mynd sem tekin var af Kelly þegar hann var færður í varðhald af lögreglunni í Chicago.Chicago Police Dept./AP
Bandaríkin Mál R. Kelly Mál Bill Cosby Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira