Vöxtur farveitunnar Uber hefur aldrei verið minni og fyrirtækið tapaði tveimur milljörðum dollara, jafnvirði um 638 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Stærstur hluti tapsins er vegna greiðslna til starfsmanna sem áttu hlutabréf í kjölfar verðbréfaútboðs sem stóð ekki undir væntingum í maí.
Tapið er það stærsta í sögu Uber. Fyrir utan greiðslurnar til starfsmanna tapaði fyrirtækið 1,3 milljörðum dollara, nærri því tvöfalt meira en í fyrra, að sögn New York Times. Tekjur Uber uxu um 3,1 milljarð sem er 14% meira en í fyrra. Það er engu að síður minnsti vöxtur sem fyrirtækið hefur greint frá í uppgjörum sínum.
Lyft, keppinautur Uber, tilkynnti í gær að útlit væri fyrir að fyrirtækið myndi ekki tapa eins miklu á þessu ári og fyrri spár gerðu ráð fyrir. Fyrirtækin eiga meðal annars í harðri samkeppni í heimsendingum á mat. Uber greindi frá því að áskrifendafjöldi þess hefði tvöfaldast á öðrum ársfjórðungi.

