Fyrsta þrenna Margrétar Láru í tíu ár og tíu mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2019 13:30 Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar marki í Pepsi Max deild kvenna í sumar. Vísir/Bára
Valskonan Margrét Lára Viðarsdóttir var á skotskónum í Pepsi Max deild kvenna í gærkvöldi en hún skoraði þá þrjú mörk í 5-1 útisigri Vals á Stjörnunni. Með þessum sigri náðu Valskonur aftur toppsætinu í deildinni. Margrét Lára var þarna að skora mörk númer 200, 201 og 202 í efstu deild á Íslandi og er aðeins annar Íslendingurinn á eftir Olgu Færseth sem tekst að skora tvö hundruð mörk í efstu deild á Íslandi. Þetta var líka langþráð þrenna hjá Margréti Láru enda sú fyrsta hjá henni í úrvalsdeild kvenna á Íslandi síðan 13. september 2008. Síðan þá eru liðin tíu ár, tíu mánuðir og sautján dagar. Margrét Lára skoraði ekki þrennu þegar hún lék í deildinni 2016 og 2017. Hún missti af öllu síðasta tímabili og þetta var fyrsta þrennan hennar í Pepsi Max deildinni í sumar. Margrét Lára lék síðan sem atvinnumaður í Svíþjóð og Þýskalandi frá 2009 til 2015. Það þarf því að fara alla leið aftur til leiks á móti Keflavík í lokaumferð úrvalsdeildar kvenna sumarið 2008. Valur var þá orðið Íslandsmeistari þriðja árið í röð og Margrét Lára varð markadrottning fimmta árið í röð. Margrét Lára skoraði 32 mörk í deildinni 2008. Í þessum 8-0 sigri Vals á Stjörnunni fyrir 3973 dögum þá voru nokkrir núverandi liðsfélagar Margrétar Láru einnig með henni í liði eða þær Dóra María Lárusdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir. Þá lék Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, núverandi Valskona, með Stjörnunni í þeim leik. Þrennan í gær þýðir jafnframt að Margréti Láru vantar nú aðeins eina þrennu í að hafa náð þrjátíu þrennum í efstu deild á Íslandi. Hana vantar enn 67 mörk til viðbótar til að ná markametið Olgu Færseth (269 mörk) en það er samt nær ómögulegt fyrir Margréti Láru að ná því meti.Þrennur Margrétar Láru Viðarsdóttur í efstu deild á Íslandi 2019 - 1 2017 - 0 2016 - 0 2008 - 4 2007 - 7 2006 - 6 2005 - 3 2004 - 4 2003 - 4 2002 - 0Samtals: 29
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira