
Mannréttindabrot og fríverslunarsamningur fari ekki saman

Í pistli sem Rósa Björk skrifaði á Facebook fjallaði um ályktun Íslands sem Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykktu á dögunum um stöðu mannréttinda á Filippseyjum.
Sjá nánar: Duterte íhugar alvarlega að slíta stjórnmálasambandi við Ísland
Hún segir að það sé ánægjulegt að sjá hversu vel starfsfólk utanríkisráðuneytisins við Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna standi sig. Eins sé gott að Ísland ætli sér greinilega að nýta sæti sitt í ráðinu vel.
„Varðandi Filippseyjar og verðskuldaðar fordæmingar okkar í ráðinu á grófum mannréttindabrotum sem leiddar hafa verið af [Rodrigo] Duterte forseta, er samt erfitt að skilja af hverju Ísland gerði fríverslunarsamning við Filippseyjar í byrjun sumars en beið ekki með það á meðan mannréttindabrotum þar myndi linna eða rannsókn Stríðsglæpadómstólsins í Haag væri lokið,“ skrifar Rósa Björk.
Rósa Björk segir ennfremur að þau Smári McCarthy, þingmaður Pírata og formaður þingmannanefndar EFTA, hafi ekki talið að mannréttindabrot og fríverslunarsamningur fari saman.
Rósa Björk, Smári, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Rósa og Smári skiluðu inn nefndaráliti minnihluta utanríkismálanefndar þar sem þau gagnrýna að fullgilda eigi glænýjan samning við Filippseyjar þrátt fyrir að forystumenn hafi brotið gróflega gegn mannréttindum. EFTA-ríkin hafi verið í kjöraðstöðu til að stöðva vinnu við samningsgerðina á meðan beðið væri eftir að ástand í mannréttindamálum myndi batna.
„Ýmis mannréttindasamtök og stofnanir sem starfa á sviði mannréttinda hafa harðlega gagnrýnt ástand mannréttindamála í forsetatíð Duterte og nú er svo komið að samkvæmt opinberum tölur á Filippseyjum hafa 5.000 manns verið drepin af lögreglu án dóms og laga á 16 mánaða tímabili, frá júlí 2016 til nóvember 2017, að fyrirskipan Duterte sem hvatti til morða á eiturlyfjaneytendum og eiturlyfjasölum. Mannréttindasamtök hafa hins vegar áætlað að fjöldi fórnarlamba sé á bilinu 12–20 þúsund“.
Það skjóti skökku við að fullgilda fríverslunarsamning á sama tíma og ástandið í mannréttindamálum sé jafn slæmt og raun ber vitni. Í raun sé óskiljanlegt að leggja svo mikla áherslu á fullgildingu fríverslunarsamnings við landið á meðan Duterte er við völd og sýnir engin merki um að milda stjórnarhætti sína.
Tengdar fréttir

Þingmaður segir Íslendinga „drepa“ fleiri með þungunarrofi en fíkniefnastríðið
Filippseyskum stjórnvöldum er enn ekki runnin reiðin eftir að mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti tillögu Íslands um að fíkniefnastríðið þar skyldi rannsakað.

Duterte segir íslensku þjóðina bara borða ís
Hann sagði enn fremur að Íslendingar skilji ekki þau félagslegu, efnahagslegu og pólitísku vandamál sem ríkið glími við.

Segir ályktunina skorta víðtækan stuðning
Í gær funduðu stuðningsmenn Duterte, forseta á Filippseyjum, með Birgi Þórarinssyni, þingmanni Miðflokksins. Fundurinn fór fram í skrifstofuhúsnæði Alþingis en auk Birgis voru þar á bilinu 20 til 30 Filippseyingar á öllum aldri.

Mannréttindavaktin fagnar hugrekki Íslands
Sérfræðingur í málefnum Filippseyja hjá Mannréttindavaktinni segir ályktun Íslands aðeins fyrsta skrefið í að draga filippseysk stjórnvöld til ábyrgðar.

Duterte íhugar alvarlega að slíta stjórnmálasambandi við Ísland
Rodrigo Duterte, Filippseyjaforseti, segist nú íhuga það af alvöru að slíta stjórnmálasambandi Filippseyja við Ísland.

Filippseyingar á Íslandi óttast afleiðingar ályktunar Íslendinga
Margir viðmælendanna við vildu hvorki koma fram undir nafni né á mynd af ótta við afleiðingar í ættlandinu.